Blanda - 01.01.1924, Page 66
60
þessa ætlar kaupmaðurinn að þilja af litla sölubúð, til
þess að geta haft þar vörusölu í sumar, því ekki er
kostur á öðrum stað, fyrir vörur þær, sem von er á
með skipinu þaugað á næsta vori.
Þessi fyrnefndu 6 hús hafði verzlunar-sölunefndin
konunglega (Realis. Comm.) tekið í umsjón sína til
skuldaöryggis.1)
Hér að auki voru önnur hús, sem kaupmaður átti
biluð og hrunin, eins og hér segir:
7. Fjósið. Mæniásinn er brotinn og þakið sigib
niður að mestu leyti. Veggirnir eru hrundir á köflum
og fullt inni af sandi og möl, svo enginn gripur verð-
ur látinn þar inn.
8. Vorugeymsluh&s lítið. Gjörhrunið, bæði þak og
veggir. Bæði hús þessi voru byggð úr grjóti og torfi.
9. Hlaðan. Byggð með grjótveggjum, en timbur-
þaki og göflum. Suðurgaflinn er brotinn og þilbitinn.
Líka hefur heyið mest allt fokið úr henni.
10. Skemma („Forraads Hus“). Byggð að sið lands-
manna, með þili, 4 stafgólf. Hún hefur sópazt alveg
úr stað.
11. Garðurinn. Hann er (í hálfhring að ofanverðu)
kring um húsin og verzlunarsvæðið. Byggður hefur
hann verið úr stóru grjóti, en gjörfelldur. Sér nú vott
af honum á 184 föðmum.
12. Yerzlunarstaðurinn og umhverfi húsanna er svo
hlaðið sandi, möl og grjóti, að það verður ekki lag-
fært til notkunar, nema með mjög miklum kostnaði,
1) Hús þessi: nr. 1 var byggt 1761, að stairð ðOXlS'/e
al., hæð 10>/8 al., nr. 2 byggt 1766, SO'/.sXlSVs °g 10l/8 al.
nr. 6 byggt 1785, 31X19 og 14 áln. Húsin, i sömu röð,
kostuðu 1787: 1072, 1319, 245. 134, 77ogl657 rd., eðaalls
4504 rd. (Þjóðskjs. A, 79 11).