Eimreiðin - 01.04.1928, Blaðsíða 91
eimreiðin LÍKAMSMENT OG FJALLAFERÐIR 187
líkamsment og fjallamál okkar eru komin í viðunanlegt horf,
— en annaðhvort verða þessi Grettistök hafin, eða þjóðin
hnýtur um smávölurnar á sjávarmölinni.
Þjóðin verður að leita máttar síns, þar sem hann er að
finna. Hvað þýðir að gefa vesalli þjóð réttarbætur og auðæfi?
Hún er viss með að sprengja sig á stjórnmálagraut þeim, sem
hávaðamennirnir sjóða á sínum sálarglæðum, eða þá að hún
verður gleypuþjóðum að bráð. — Á meðan að íslendingar hugsa
nieir um þorskinn en fjöllin, sjá þeir ekki ráð við lífrænum mis-
tökum. Ægir tekur það með vinstri hendi aftur, sem hann gefur
með hægri, en fjöllin gefa með báðum höndum varanlegar gjafir.
Tímarnir, sem við lifum á, eru alvarlegir. Alt miðar að meiri
Þægindum og minni hreyfingu, og fólk eltir öfuguggaháttu
ntlendrar vélamenningar, tízkugrillur og hégóma.
Hinn norræni frummáttur er í ætt við blágrýtið en ekki sand-
steininn. Æskulindirnar finnum við í hugheimi okkar og fjöllum.
Guðmundur Einarsson
frá Miðdal.
Ljóðaþýðingar
úr rómönskum málum.
úr ítölsku.
KAFALD.
Hvítur er akur og stígur.
Léttur og þegjandalega
líðandi snær alla vega
hnígur.
Dansar í loftinu áttlaus,
leikandi, snjóflyksan, berst hún;
síðan á jörðina sezt hún
máttlaus.