Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1930, Side 29

Eimreiðin - 01.07.1930, Side 29
EIMREIÐIN Flakk. Eftir Odd Oddsson. Frá fornöld hefur verið hér á landi fleira eða færra fólk, sem hefur gert flakk að lífsstarfi sínu að meira eða minna leyti. Var fólk þetta á sífeldu rölti manna á milli um stærri eða smærri svæði af landinu, bað ýmist um gjafir eða settist að á heimilunum eins og því sýndist, í fleiri nætur í senn, og níddist þannig á gestrisni manna. Þetta varð á fyrri tímum mesta plága, eins og mörg rit sýna, enda voru samin býsna ströng lög til þess að hefta flakkið, en erfitt veitti að afnema það, einkum vegna þess, að menn voru neyddir til að heim- >la, og jafnvel Iögbjóða, sérstökum þurfamönnum að flakka, þeim til framfærslu, um tiltekin svæði. Þegar óvenju mikil harðindi, eldgos eða fiskileysi orsökuðu óviðráðanlegan bjargar- skort í einhverjum hluta landsins, varð fólk þaðan beinlínis neytt til að flakka, þangað til hallærinu létti eða það gat framfært sig í öðrum héruðum. Þegar komið var fram á síðastliðna öld, voru hinir eigin- legu flakkarar ekki aðrir en »iðjulausir húsgangsmenn og betlarar*, sem ekki nentu að vera í vistum eða hlupu úr vistum jafnskjótt og þeir voru neyddir til að vista sig. Að v>su var þá flakkið óheimilt, undir flestum kringumstæðum, °3 lágu við hýðingar og ærumissir, en almenningur leið það nú samt, og flökkufólki var að jafnaði svo vel tekið, að flakk- ararnir, sem kölluðu flakkið ról, höfðu það að orðtaki sín á milli; »Það má vera góð vist, ef hún er á við rólið*. Þegar ég man fyrst (um 1875), kom oft flökkufólk og betlarar á heimili föður míns. Flest var það innansýslufólk, °S margt af því gerði sér eitthvað til erindis, svo sem gamlar honur, er komu á vorin um fráfærurnar úr héruðum þar sem me/gras óx. Rifu þær upp rætur melsins, hreinsuðu þær og færðu húsmæðrum á efnaðri heimilum dálitla busku af þess- um rótatæjum, sem voru þá ómissandi við þvott mjólkuríláta, °3 til þess að sía rjómann, því þá voru útlend »sigti« sjald-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.