Eimreiðin - 01.01.1935, Blaðsíða 98
»>
MÁTTARVÖLDIN
EIMREIÐIN
Ég á eftir að segja yður
hvernig á að vekja aftur
þann, sem dáleiddur er. Þetta
má gera með því aðeins að
anda köldu á enni honum eða
á milli augnanna. Einnig má
láta hann vakna til meðvit-
undar aftur með því að
strjúka með höndunum upp
á við um líkaina hans, þann-
ig að strokurnar verði öfug-
ar við þær, sem notaðar voru
við svæfinguna.
Ég er nú kominn að niður-
lagi erindis míns. En niður-
lagið er ávalt nýtt uppphaf
þeim, sem eru opnir fyrir
sannleikanum. Og vissulega
er þetta niðurlag erindis
mins upphaf nýs kraftar yð-
ur til styrktar, ef þér aðeins
viljið skilja það, sem ég hef
sagt. Þvi þér getið hafið yður
upp úr hversdagslífinu, þér
getið lægt ófrið og deilur og
flutt með yður frið og fögnuð,
þér getið hreinsað hugann,
aukið viljaþrekið, klætt hugs-
anir yðar efnisforinuin og
leyst þau upp aftur, og þér
getið látið þunga hluti nálg-
ast úr fjarlægð, án þess að
snerta þá. Því ef þér hafið
trúna, þá þurfið þér ekki
annað en heina huganum að
einhverjum hlut og vilja, að
hanu komi til yðar, og sjá,
hann mun lyftast hægt og
nálgast eftir skipan yðar.
Ég hef aðeins minst á fá-
eina hinna minni leyndar-
dóma Austurlanda, einkum i
Arabíu, Indlandi, Egyftalandi
og Thibet, en það, sem ég hef
skýrt yður frá, er aðeins brot
af þeim sannindum, sem vitr-
ingaV jarðarinnar þekkja.
Hvernig óskirnar rætast.
(IliinnKÓkn á kyngilögmálum náttúrunnar).
(Þáttur pessi er að efni til erindi, liið fyrsta flutt i Renton Terrace Hall
i Leeds, sunnudaginn 6. október 1932, annað í Mayfair-hóteli í London
25. marz 1934 og einnig i Bókmenta- og málfundafélaginu i Bridlington,
23. janúar 1934. í lok páttarins eru nokkrar athyglisverðar viðaukagreinir
urn liin ýmsu liugarorku-fyrirbrigði, sem sýnd voru í sambandi við er-
indið í Mayfair).
Rétt hugarfar er lykillinn að hamingjunni.
Rangsnúið hugarfar leiðir út í það, sem kallað er
„svartigaldur“ og flytur bölvun yfir þá, sem það