Eimreiðin - 01.01.1953, Blaðsíða 28
16
KALDA STRlÐIÐ OG ISLENZK MENNING
EIMREIÐIN
því, að vér leggjum enn meiri rækt en áður við þessa vora
sérstæðu menningu, um leið og oss lærist að frjóvga hana
í þeim menningarlindum, sem tærastar berast frá öðrum
þjóðum, en forða henni frá grugginu. Þó að kalda stríðið í
heiminum æði áfram um langt skeið, mun menningu vorri
borgið, ef rétt er stefnt.
Sveinn Sigurðsson.
Vængillinn og framtíð hans.
Vængillinn (helicopterinn eða koptinn) er sífellt að ryðja sér til rúms
meðal nýrra fartækja í ýmsum löndum. Þrjú stór vængla-flugfélög
halda nú uppi vængil-ferðum í Bandaríkjunum. Eitt þeirra hefur að-
setur í Los Angeles (Los Angeles Airways, Inc.)), annað í New York
(New York Airways, Inc.) og það þriðja í Chicago (Helicopter Air
Service, Inc.). Þessi þrjú félög annast nú póstþjónustu með vænglum
til 92 sveitarfélaga í Bandarikjunum. Með vænglum þeirra hafa verið
fluttar meir en 28 milljónir punda af pósti, og þeir hafa flogið hálfa
þriðju milljón mílna samanlagt á vegum þessara þriggja félaga.
Á þessu ári hefja að minnsta kosti tvö félaganna fastar áætlunar-
ferðir fyrir farþega og farangur með vænglum. Sennilega bætist þriðja
félagið einnig við i hópinn seint á þessu ári. Vængillinn er einnig not-
aður til margs konar rannsókna og vinnu, svo sem við landbúnað, lög-
reglustörf, skógarhögg, námugröft, simalagningar, björgunarstörf, Ijós-
myndun úr lofti, jarðfræði- og jarðeðlisfræði-rannsóknir, iandkortagerð,
fiskveiðar og flutninga á jurtum til útgræðslu og ræktunar.
Á síðustu tíu árum hafa vélar þessar verið endurbættar svo mjög, að
burðarmagn þeirra hefur fimmtánfaldazt og hraðinn tvöfaldazt.
Sem stendur eru til 10 verksmiðjur í Bandaríkjunum, sem framleiða
vængla. Af þeim eru þrjár, sem sent hafa á markaðinn síðan árið 1946
yfir 500 vélar af þessari gerð. Flestar þeirra hafa farið til hersins, en
nokkrar einnig til þess að bæta úr samgönguþörfum almennings.
Flestir einkavænglar eru tveggja til fjögra sæta, en einnig hafa verið
smiðaðir 12 sæta vænglar, og snemma á þessu ári er verið að taka í
notkun 40 farþega hernaðarvængil, sem einnig má nota til venjulegra
samgöngubóta fyrir almenning. Á næstu 4 árum verða smiðaðir fleiri
slíkir vænglar, með rúm fyrir 30—40 farþega, sem fara með 200 km.
hraða á klukkustund.
Vængillinn hefur ýmsa yfirburði um fram önnur fartæki. Hann getur
staðið kyrr í loftinu, tekið sig upp og lent svo að segja hvar sem er,
svo að venjulegir flugvellir eru óþarfir. Hann getur tekið sig lóðrétt
upp af jörðu og lent lóðrétt. Hann getur flogið mjög lágt, tekið sig
upp og lent í þéttbýli, í görðum, á götum og á flötum húsþökum. Mjög
líklegt er, að hann komi á næstu áratugum að meira eða minna leyti
í stað bila. Ef til vill verður hann eftir svo sem hálfa öld orðinn eins
algengt farartæki hér á Islandi eins og bílar eru nú. Sv. S.