Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 71

Iðunn : nýr flokkur - 01.06.1933, Side 71
IÐUNN Koss milli hafna. 245 Þau horfast í augu um leið og hún gengur fram hjá honum niður í stigann. Hvað merkir augnaráð [reirra? „Ég elska jiig eftir jressa stuttu stund“? Nei, jiað merkir annað. „Mér er farið að Iiykja vænt um þig. Vona að við sjáumst síðar“? Nei. Það merkir: „Þökk fyrir skemtunina; mér féll vel við j)ig.“ Þau höfðu sést milli hafna, kynst milli hafna og skiklu nú í höfn. Þau höfðu hvorki heilsast né kvaðst. Öll kynning jieirra var kveðja. Þau höfðu ekki einu sinni spurt hvort annað að nafni eða hverra manna jrau væru. Hvað varðaði hann um, hvort hún hét Nikólína eða Jónasina? Hvað kom jieim viö, hvort jiau voru komin út af norrænum höfðingja- stofni í ættir fram eða óbreyttu aljiýðufólki, sent sagna- ritararnir gleynta næstum að hafi verið til? Það draup jafn-mikið hunang af vöruni jteirra fyrir jtví. „Hold er mold . . .“ o. s. frv. Báturinn skríður frá skipshlið í land. Þau horfast í augu. i tillitum jteirra felst hvorki ást né söknuður. Það er eins og jressar ungu nútíma-manneskjur skilji mörgunt öðrum freniur, að jtað er ekki tími né tækifæri fyrir alltýðufólk til að elska í jtessu lífi. Augu jieirra skiftast á skeytum. Skeytin flytja: Þökk. Að lokum slítur fjarlægðin sambandið sundur. Verur hittast — verur skilja og hitta aðrar til að skilja við j)ær. Hvað f>ær vilja, spyr enginn um. Þær finna j)etta, j)ótt þeim sé j)að ekki ljóst. Þeim er j)að í eðlið borið, eða ef til vill hefir lífið kent jieim ])að, að uiljinn er bundinn, en j)ó knúinn áfram til starfs af lífshvöt lífveranna. Hann er knúinn til að velja að eins skárra hlutskiftið af tvennu illu.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.