Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Page 21

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Page 21
siðar verður lýst, var lögfest, og rannsóknarskylda dóm- ara um skjöl stóraulcin. Krafizt var i miklu rýmra mæli en áður fyrr, að útgefandi skjals liefði þinglýsta heimild til eignar, þótt lögin séu nokkuð sitt með hverju mótinu um það efni. Lögfestar voru reglur, sem eiga að sporna við þvi, að ógild skjöl nái þinglýsingu, shr. einkum regl- ur um staðfestingu eða vottfestingu skjals. Nýjar regl- ur voru settar um birtingu i sambandi við þinglýsingu, en á því atriði grípa raunar nýju lögin i löndum þess- um næsta mismunandi. Þá er komið við reglum um gildisáhrif þinglýsingar á þá lund, að grandlaus þriðji maður megi yfirleitt treysta því, að þinglýst skjal, er varðar eignarheimild, sé gilt. Enn er áskilið, að fleiri réttaratvik, er leiða til stofnunar réttinda, séu háð þing- lýsingu en fvrr var. Nýjar reglur eru settar um það, er mistök eiga sér stað í þinglýsingarstarfseminni, hæði um það, livaða aðili eigi að vægja, ef réttindum þeirra lýstur saman, svo og um bótarétt á hendur rikissjóði. Þá eru ákvæði um, að ýmsum gögnum, sem áður var unnt að þinglýsa, verði eklci þinglýst, heldur eru þau talin fylgiskjöl með þinglýstu skjali, sbr. cinkum um- boð. Loks má benda á ákvæði um timabundið gildi þing- lýsingar, og verður þeirra getið hér siðar. IV. Við samningu þinglýsingarfrv. þess, er nú hefir verið flutt á Alþingi sen stjórnarfrv. hefur verið reynt að lcanna það eftir föngum, i hverju íslenzkum lögum og lagaframkvæmd um þinglýsingar sé helzt áfátt, að því er tekur til efnisreglna og formreglna. Hefur og verið höfð hliðsjón af erlendri þinglýsingarlöggjöf, og þá einkum Norðurlandalöggjöf. Er ýmislegt i frv. þessu reist á Norðurlandalögunum, cn sumu er öðru vísi skipað, þar sem staðliætlir, viðskiptavenjur og atvinnuhættir eru hér i mörgum grcinum með öðrum hætti en á hinum Norðurlöndunum. Yfirleitl er það skipulag, sem lagt er Tímarit lögfrœfíinga 19

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.