Tímarit lögfræðinga - 01.01.1967, Blaðsíða 28
Tafla IV. Rétt þótti að freista þess, að veita einhverja
hugniynd um það, hvernig meðferð tillekinna málaflokka
væri háttað um tímalengd. Af ástæðum, sem þegar hafa
verið tilgreindar, varð ekki af þessu, nema að óverulegu
leyti.
I töflu þessari eru tilgreindir 3 flokkar opinberra mála.
Afengis- og umferðarlagabrot, hegningarlagabrot, og svo
önnur mál. Um fyrsta flokkinn, áfengis- og umferðarlaga-
brot, er það að segja, að i honum eru talin mál, þar sem
eingöngu er um slík brot að ræða. Ef mál lýtur að áfengis-
og umferðarlagaln'oti og einnig broti á öðrum lögum, er
það ekki tilgreint í þessum flokki, heldur hinum, eftir
því sem við á. Hér eru með öðrum orðum tiltekin þau
mál ein, sem falla beint í þennan stóra málaflokk. Um
hegningarlagabrotin er það að segja, að þar er um að ræða
öli mál, þar sem brot varðar við ákvæði hegningarlaga,
enda þótt einnig sé beitt ákvæðum annarra refsilaga, svo
sem áfengis- og umferðarlaga. Um þriðja flokkinn, önnur
mál, skal það tekið fram, að þar er um að ræða brot á
ýmsum sérrefsilögum, t. d. umferðarlögum og áfengis-
lögum, þegar þau brot fara elcki saman; þarna eru og
talin fiskveiðibrot o. fl. þ. h.
Ef tekin er hundraðstala framangreindra flokka, er hún
sem hér segir:
Áfengis- og umferðarlagabrot .... 65.76%
Hegningarlagabrot.............. 20.54%
Önnur brot..................... 13.70%
100.00%
Þá var i bréfi dómsmálaráðuneytisins þess óskað, að
grein væri gerð fyrir því, i hversu mörgum málum sakir
fvrntust vegna dráttar á meðferð þeirra.
Um þetta bárust mjög ófullkomnar upplýsingar, og var
það bagalegt, þar sem þvi er oft fleygt, að nokkur brögð
séu að því, að sakir fvrnist vegna dráttar á málsmeðferð.
22
Tímarit lögfræðinga