Tímarit lögfræðinga - 01.01.1967, Blaðsíða 29
Það, sem fvrir liggur um þetta atriði, sker engan veginn
úr um það, hversu mikið kveði að fvrningum saka vegna
greindra orsaka. Ummæli yfirsakadómara, sýslumanns
Evjarfjarðarsýslu og bæjarfógeta Akureyrar, svo og upp-
lýsingar þær, sem fyrir liggja úr Gullbringu- og Kjósar-
sýslu og Hafnarfjarðarkaupstað, benda til þess, að nokkuð
kveði að fyrningu saka 1 stærstu umdæmunum, en þó að-
eins í minniháttar málum.
Skal þetta nú rakið eftir því sem vitneskja fékkst.
Reykjavík (sakadómur): Um fyrningu saka vegna
dráttar á meðferð mála segir vfirsakadómari í bréfi 16.
april 1966: „Að sjálfsögðu er revnt að lála sem fæstar
kærur fyrnast, en þær fjalla fvrst og fremst um ölvun
á almannafæri og óheimila stöðu hifreiða. Slikar kærur
munu fyrnast í hundraða tali árlega.“
Mýra- og Borgarfjarðarsýsla: Engar upplýsingar.
Akraneskaupstaður: Þar er tekið fram um tímabilið 1964
—1965, að engar sakir hafi fyrnzt.
Snæfellsness- og Hnappadalssý'sla: Engar upplýsingar.
Dalasýsla: Tekið er fram um timabilið 1964—1965, að
engar sakir bafi fyrnzt.
Barðastrandarsýsla: Tekið er fram um timabilið 1961—
1965, að engar sakir hafi fyrnzt.
ísafjarðarsýsla, ísafjarðarkaupstaður: Tekið er fram um
tímabilið 1961—1963, að sök hafi fvrnzt í 1 máli, en
ekkert er tekið fram um tímabilið 1964—1965.
Bolungarvík: Tekið er fram um límabilið 1961—1965,
að sakir hafi ekki fyrnzt.
Strandasýsla: Ekkert opinbert mál.
Húnavatnssýsla: Engar upplýsingar.
Skagafjarðarsýsla, Sauðárkrókskaupstaður: Engar upp-
lýsingar.
Siglufjarðarkaupstaður: Tekið er fram um tímabilið
1961—1963, að þá hafi sakir fyrnzt i 4 málum, en ekki
í neinu máli 1964—1965.
Ölafsfjarðarkaupstaður: Engar upplýsingar.
Eyjafjarðarsýsla, Akureyrarkaupstaður: Um árin 1961—
Tímarit lögfræðinga
23