Tímarit lögfræðinga - 01.06.1968, Blaðsíða 77
greining greiðslustaðar er formskilyrði víxils sbr. 5. tl. 1.
gr. laga nr. 93/1933. Þessu skilyrði er skv. framansögðu
ekki fullnægt að því er framlagða vixla varðar og verður
ekki hjá því komizt að vísa málinu af þessum sökum ex
officio frá dómi.“ Dómur uppkv. 9. febrúar 1968.
Um varnarþing í víxilmálum.
I.
R höfðaði mál gegn Kaupfélagi Vopnfirðinga til greiðsiu
víxils að fjárhæð kr. 3,639,00 útgefins 17. janúar 1968 af
fyrirtækinu A., en samþykkts af stefnda til greiðslu í Bún-
aðarbanka Islands, Egilsstöðum, 2. apríl 1968. Víxillinn
var afsagður vegna greiðslufalls 4. apríl 1968. Útgefandi
var ábekingur á víxlinum og hafði leyst hann til sín.
Stefnandi hafði umboð útgefanda til þess að höfða málið.
Af hálfu stefnda var hvorki sótt né látið sækja þing og'
var málið því dæmt eftir 118 gr. laga nr. 85/1936.
I niðurstöðu dómsins segir svo: „Víxillinn, sem lagður
er fram í málinu er til greiðslu í Búnaðarbanka Islands,
Egilsstöðum, en heimilisvarnarþing stefnda er á Vopna-
firði. Samkvæmt framansögðu brestur því heimild til þess
að höfða mál þetta fyrir bæjarþingi Reykjavikur. Áritun
fulltrúa kaupfélagsstjóra, er tók við stefnubirtingu um
samþykki þess, að málið verði rekið fyrir bæjarþingi
Reykjavíkur, er ekki nægjanlegt til þess að bæta úr fram-
angreindum galla á málshöfðuninni, þar sem ekkert er
fram komið um heimild hans til þess að skuldbinda
stefnda með málflutningsyfirlýsingum, né heldur hafa
stefnuvottar vottað sérstaklega umrætt samþykki. Sam-
kvæmt framansögðu verður að vísa máli þessu frá dómi
ex officio.“ — Dómur uppkveðinn 20. júni 1968.
II.
V. h.f. höfðaði mál gegn B. til heimilis að S-götu, Kefla-
vík, til greiðslu víxils að fjárhæð kr. 25,000,00 útgefins
15. desember 1966 af stefnanda, en samþykkts af stefnda
Tímarit lögfræðinga
137