Tímarit lögfræðinga - 01.01.1969, Blaðsíða 58
skurði vegna þeirra eða að þeim megi áfrýja þangað.
Um sýslumanns- eða lögreglustjóraembættin má það
segja, að i Reykjavík a. m. k. yrði þeim skipt niður á
fleiri embætti.
Enda þótt það þyki liggja utan marka þessa verkefnis,
að gera tillögu um ákveðin umdæmi, er rétt að ræða nokk-
uð umdæmaskiptingu þessara embætta. Henni er rétt að
breyta t. d. á S.-V.landi. Leggja má sum þeirra niður og
leggja við önnur embætti vegna þess, að byggð hefur dreg-
izt saman og samgöngur breytzt. Hreppstjórar eða yfirlög-
regluþjónar í minni þorpum og sveitum gætu í ríkara mæli
farið með ýmsa löggæzlu og fleiri þau málefni, sem stað-
bundnust eru. Sérstaklega á þetta við, ef hrepparnir verða
stækkaðir. Leggja ætti þannig niður lögreglustjóraembætt-
ið í Bolungarvík og leggja við fsafjarðarsýslu, sýslumanns-
einbættið í Strandasýslu má leggja við Húnavatnssýslur
og Dalasýslu við Snæfellsnes- og Hnappadalssýslur. Skipta
ætti sýslumannsembætti Skaftafellssýslu þannig, að eystri
hlutinn fylgdi Suður-Múlasýslu, en sá vestari Rangárvalla-
sýslu. Fleiri möguleika þessu lika má nefna. Svo sem að
leggja niður Ólafsfjörð og Neskaupstað sem sjáli'stæð
umdæmi. Sérstök rannsókn verður að fara fram á öllum
þessum embættum, áður en að þessu ráði er horfið.
Vera má, að einhver gnýr vrði i sveitum þessum, en
bæði er, að ef skiptingin er öll endurskoðuð, eru minni
möguleikar óánægju og svo hitt, að slíkar óánægjuöldur
hverfa skjótt. Sérstaklega ef ekki verður munur á þjón-
ustu við héraðið og samráð haft við héraðsbúa. Þjón-
ustan við landshlutann i heild verður auðvitað betri við
tilkomu fylkisdómsins. Bæta má úr göllum skipulagsins,
sem hlýzt af, að úrskurðir samkv. 65—66. gr. stj.gr. verða
varla lagðir til fvlkisdómanna úti um land, þar sem upp-
kvaðning þeirra þolir litla sem enga bið. T. d. er hugsan-
legt, að mæla svo fyrir, að fylkisdómur þurfi að stað-
festa úrskurði þessa innan ákveðins tíma. Er þá trjrggt
eftirlit með aðgerðum þessum og lögreglustjórum þannig
52
Timarit lögfræðinga