Tímarit lögfræðinga - 01.10.1974, Blaðsíða 52
bæjarfógeta og sýslumanna, ríkissaksóknari og hæstaréttarritari.
Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf. Sérstaklega urðu miklar um-
ræður um kjaramál dómara. Aðalstjórn félagsins var öll endurkjörin og skipa
hana: Björn Þ. Guðmundsson borgardómari, formaður, Haraldur Henrýsson
sakadómari, Magnús Thoroddsen borgardómari, Már Pétursson héraðsdóm-
ari og Unnsteinn Beck borgarfógeti.
Aðalfundur Sýslumannafélags íslands var haldinn í húsakynnum tollstjóra-
embættisins í Reykjavík 25. og 26. október s.l. Félagsmenn eru allir sýslu-
menn og bæjarfógetar landsins, svo og tollstjórinn og lögreglustjórinn í
Reykjavík, tollgæslustjóri og lögreglustjórar í byggðarlögum landsins.
Á fundinum voru félaginu sett ný lög. Umræður urðu m. a. um framkvæmd
almannatryggingalaga, svo og um málefni héraðanna, einkum ráðstafanir til
þess að styrkja fjárhagsaðstöðu sýslufélaganna til þess að þau gætu betur
risið undir kostnaði við umbætur í menningar-, félags- og atvinnumálum.
í stjórn félagsins eiga sæti Ásgeir Pétursson sýslumaður (formaður), Björn
Hermannsson tollstjóri og sýslumennirnir Páll Hallgrímsson, Björn Fr. Björns-
son og Friðjón Þórðarson.
BREYTINGAR í FÉLAGSDÓMI
Skv. lögum um stéttarfélög og vinnudeilur skal Félagsdómur skipaður til
3 ára í senn. Hinn 1. október s.l. hófst nýtt starfstímabil, og urðu þá verulegar
breytingar á skipan dómsins. Hákon Guðmundsson, sem verið hafði forseti
dómsins allt frá því að hann var settur á stofn 1938, hvarf frá störfum. Þá
hættu einnig störfum í Félagsdómi Gunnlaugur Briem fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri og Einar Arnalds hæstaréttardómari. Gunnlaugur hafði verið í dómum
frá 1938, en Einar frá 1962. Einar Baldvin Guðmundsson hrl., sem andaðist
í febrúar, átti sæti í Félagsdómi, er hann féll frá. Var dómurinn svo skipaður
1971, að í honum sátu Hákon Guðmundsson og Gunnlaugur E. Briem, skip-
aðir af Hæstarétti, Einar Arnalds, skipaður af félagsmálaráðherra, Einar B.
Guðmundsson, skipaður af Vinnuveitendasambandi Islands, og Ragnar Ólafs-
son hrl., skipaður af Alþýðusambandi íslands. Varamenn voru Ragnar Jóns-
Hákon Guðmundsson,
forfeeti Félagsdóms 1933—1974,
og eftirmaður hans,
Guðmundur Jónsson
114