Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Síða 34

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Síða 34
1. mgi-. Skiptir því ekki máli, hvernig erindi kemst á áfangastað, t. d. hvort það nær þangað af hreinni tilviljun. Sé erindi sent í simskevti, telst það hafa borist sama dag og stjórnvaldi er sérstaklega tilkynnt um skeytið, t. d. með tilkynningu frá viðkomandi símstöð, sbr. s. mgr. Erfitt getur reynst að sanna, að erindi eða pósttilkynning hafi komið á skrifstofu stjórnvalds ákveðinn dag, sérstaklega ef það hefur komið að loknum venjulegum vinnudegi. Því eru löglíkur taldar fyrir því, að erindi hafi borist stjórnvaldi tiltekinn dag, komist það til vitundar þess á næsta virkum degi, sbr. 7. gr. 2. mgr. Liggi bréf t. d. í póstkassa stjórnvalds á mánudagsmorgni, verður litið svo á, að það hafi borist á föstudegi, mæli ekkert á móti því. Þá getur stjórnvald farið þess á leit við þann, er sent hefur sím- skeyti eða annað erindi, að hann staðfesti það með eigin undirskrift, sbr. 7. gr. 3. mgr. Það getur stundum verið nauðsynlegt að ganga úr skugga um, hvort sá, sem sagður er hafa sent erindi, hafi gert það í raun og veru. Neiti hlutaðeigandi að verða við tilmælum stjórnvalds, skal líta á erindið sem óundirritað, en að öðru leyti rétt fram komið. 172

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.