Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Qupperneq 4

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Qupperneq 4
Á fundi Sambands íslenskra sveitarfélaga 23. nóvember sl. var samþykkt að styðja þá hugmynd að öll sveitarfélög innan héraðs eða sýslu yrðu sameinuð þannig að sveitarfélög yrðu að jafnaði ekki fáliðaðri en 1000 íbúar og ekki fleiri en 30-35. Þann 26. mars 1993 skilaði sveitarfélaganefnd lokaskýrslu til félags- málaráðherra þar sem tekið er undir þetta sjónarmið og þeirri skoðun jafnframt lýst að ríkisvaldið þurfi að taka grundvallarákvörðun um hvort það ætli að efla almennt umboðsvald í héraði og á það bent að samræma þurfi svæðaskiptingu í stjórnsýslu og þjónustu ríkisins jafnframt því að skipting landsbyggðarinnar í sveitarfélög verði felld að þeirri svæðaskiptingu. Þann 9. júní 1992 skipaði forsætisráðherra nefnd til að gera tillögur um stofnanaflutning frá höfuðborgarsvæðinu og er tillagna hennar að vænta í lok apríl. Ætla má að í þeim verði ráðagerðir um dreifingu verkefna frá miðstjórnar- stofnunum til almennra umboðsstofnana í héraði. Skipulagsbreytingar af því tagi sem hér hefur verið lýst leiða eðlilega til þeirrar hugsunar að bæði hin nýju sveitarfélög og ríkið sjálft verði að huga að því að þjónusta þeirra verði í boði svo nærri þegnunum að þeir geti notið hennar án óhæfilegrar fyrirhafnar og jafnframt að af þeim leiði ekki firring milli almenn- ings og stjórnvalda og skerðing lýðræðis. Hrepparnir eru elstu stofnanir íslensks samfélags. Ef til vill má rekja frumrætur þeirra til fyrsta tímaskeiðs byggðar í landinu. Hreppstjórastarfið er að líkindum ekki jafngamalt hreppunum en sennilega elsta opinber staða íslensks stjórnkerfis, eldri en embætti presta, prófasta og biskupa og vissulega eldri en sýslumannsembættin, sem eiga rætur í stjórnkerfi Noregskonungs og fylgdu með þegar hann færði út ríki sitt til Islands. Hreppstjórar voru lengi vel fimm í hverjum hreppi og fóru með sambærileg störf og hreppsnefndir nú á dögum og hreppsfélögin eru eitt elsta dæmi sem þekkt er um sjálfstjórn sveitarfélaga. Gagnstætt Alþingi er saga þeirra óslitin og þeir hafa aldrei breytt um grundvallareðli. Eftir því sem konungsvald efldist í landinu dró úr sjálfstæðri héraðsstjórn; hreppstjórar urðu smám saman umboðs- menn sýslumanna eins og þeir eru enn í dag. Þessi þróun náði hámarki um 1800 og lauk svo að aðeins var einn hreppstjóri í hverjum hreppi. Þegar sjálfstjórn sveitarfélaga var tekin upp að nýju með sveitarstjórnartilskipuninni 1872 voru embætti hreppstjóra látin halda sér en kjörnum sveitarstjórnum falin stjórn hreppanna. Til allrar hamingju hefur tekist að forða því að sýslumannsembættin dagaði uppi eins og nátttröll og nú hafa þau verið aðlöguð kröfum tímans eins og best verður á kosið, að öðru leyti en því að enn hafa sýslur ekki verið stækkaðar eins og vert væri og til þeirra má enn leggja ýmis verkefni sem nú er sinnt í stjórnarráði og stofnunum í höfuðstaðnum. Með sveitarstjórnarlögum nr. 81986 234

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.