Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Page 126

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Page 126
Greiða skal sérstakt gjald, flugvallagjald, vegna hvers manns sem ferðast með loftfari frá Islandi til annarra landa. Samkvæmt 6. gr., sbr. 13. gr. laganna, var gjaldið 1250 kr. fyrir hvern farþega sem ferðaðist frá íslandi til annarra landa, en samkvæmt 7. gr., sbr. 13. gr. laganna, áttu flugfélög að greiða 165 kr. vegna hvers farþega sem ferðaðist innanlands eða til Færeyja og Grænlands. í svari samgönguráðuneytisins kom m.a. fram að meirihluti tekna vegna flugvallagjalds færi til að standa undir kostnaði við uppbyggingu og rekstur innanlandsflugvalla og að sá greinarmunur sem gerður væri milli innanlandsflugs og millilandaflugs við skattlagninguna skýrðist m.a. af því að íslensk stjómvöld vildu ekki leggja of mikla byrði á innanlandsflug. ESA taldi svarið ekki fullnægjandi og í lok ársins 1998 hóf ESA fomilega rannsókn málsins á grundvelli 31. gr. samningsins rnilli EFTA- ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls (hér eftir stofnanasamningur- inn). Eftir áralöng bréfaskipti og viðræður milli ESA og íslenskra stjómvalda höfðaði stofnunin í janúar 2003 samningsbrotamál á hendur íslandi þar sem á því var byggt að sá munur sem væri á flugvallagjöldum, eftir því hvort um innanlands- eða millilandaflug væri að ræða, hindraði flugþjónustu innan EES og bryti því gegn 36. gr. EES-samningsins, sbr. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar 2408/92. Island mótmælti því að gjaldtakan takmarkaði frelsi til flugþjónustu á EES. Byggðist vöm íslands einkum á því að gjaldtakan hefði engin áhrif á flugþjónustu milli EES-ríkja. Lagði ísland í því sambandi m.a. áherslu á að flug- þjónusta innanlands og rnilli landa væri ekki sambærileg og að gjaldtakan endurspeglaði þann kostnað sem fælist í að veita millilandaflugi þá þjónustu sem gjaldinu væri ætlað standa undir. Kæmist dómstóllinn engu að síður að þeirri niðurstöðu að gjaldtakan hindraði flugþjónustu á EES, mætti réttlæta hana á grundvelli almannahagsmuna sem tengdust öryggis- og byggðasjónarmiðum. 2.2 Dómur EFTA-dómstólsins 2.2.1 Inngangur í dóminum vék EFTA-dómstóllinn fyrst að almennum sjónarmiðum um gildissvið EES-samningsins, skýringaraðferðum sem byggt er á við túlkun EES-samningsins svo og megininntaki 36. gr. EES-samningsins og reglugerðar 2408/92. Efnislega umfjöllun um málsástæður aðila má hins vegar greina í þrjá meginhluta. ífyrsta lagi afstöðu dómsins til raka íslands þess efnis að sérstakar aðstæður á íslandi leiddu til þess að ekki væri unnt að bera saman annars vegar flugþjónustu innan íslands og hins vegar flugþjónustu til og frá landinu. I öðru lagi mat á því hvort hin umdeilda löggjöf hindraði frjálsa flugþjónustu á EES og í þriðja lagi mat á því hvort að einhverjar réttlætingarástæður væru fyrir hendi. Verður hér vikið að hverju þessara atriða fyrir sig. 420
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.