Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Page 143

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Page 143
lags um eftirlit og lausn deilumála sem gert er ráð fyrir í EES-samningnum. Leit ESA svo á að 3. og 7. gr. bókunarinnar sem á reyndi í þessu máli ættu undir valdsvið dómstólsins. I máli framkvcemdastjórnarinnar kom aftur á móti fram að hafna bæri þeirri túlkun á a-lið 3. mgr. 8. gr. EES-samningsins að fiskur sé ekki vara sem heyri undir almennar reglur um frjálsan flutning. Þótt fiskur félli ekki undir II. hluta EES-samningsins leiddi það af 20. gr. að sérstakar reglur giltu um fisk. Þá taldi framkvæmdastjómin að túlka bæri a-lið 2. gr. og 119. gr. EES-samningsins og 34. gr. stofnanasamningsins svo að EFTA-dómstóllinn væri bær til að veita ráðgefandi álit um túlkun á bókun 9 EES. Virðist mat framkvæmdastjómarinnar á valdbæmi EFTA-dómstólsins til að gefa ráðgefandi álit um bókun 9 EES nokkuð annað en mat stofnunarinnar á bærni ESA til að fjalla um ríkisstyrki á grundvelli bókunar 9 EES í málinu nr. E-2/94 Scottish Salmon. Þar studdi fram- kvæmdastjómin rök ESA fyrir því að stofnunin væri ekki bær til að fjalla um ríkisstyrki í sjávarútvegi. Hvað valdbæmi ESA snertir má benda á að í riti Stefáns Más Stefánssonar prófessors um Evrópusambandið og Evrópska efnahagssvæðið eru viðruð sjónarmið með og á móti því að ESA hafi heimildir til að túlka bókun 9 EES.54 Telur hann að það geti verið eðlilegt að skýra almenn ákvæði EES-samningsins og stofnanasamningsins þar sem fjallað er um hlutverk ESA svo, að ESA hafi vald til að fylgjast með því hvort reglum bókunar 9 EES sé fullnægt. Hann tekur þó fram að huga verði að því hvort bókunin sjálf hafi að geyma einhverjar undantekningar frá þessari reglu. Bendir hann í því sambandi á 6. gr. bókunar- innar sem hann segir hugsanlegt að túlka svo að öll ágreiningsefni eigi undir sameiginlegu EES-nefndina. Sú niðurstaða sé þó ekki augljós þar sem ákvæðið útiloki ekki rannsóknar- og ákvörðunarheimildir ESA eða framkvæmdastjómar- innar, þ.á m. á sviði ríkisstyrkja. T. Blanchet o.fl. komast að svipaðri niðurstöðu um hlutverk ESA vegna ríkisstyrkja í sjávarútvegi. Telja þau, enda þótt ekki séu fyrir hendi neinar málsmeðferðarreglur vegna ríkisstyrkja í sjávarútvegi, að ESA geti farið fram á að fá upplýsingar um ríkisstyrki á þessu sviði og geti jafnframt gripið til viðeigandi ráðstafana ef nauðsyn krefur.55 Þrátt fyrir þetta virðast þau þó álíta að úrræði sem gripið verði til vegna samkeppnishindrana, sbr. 2. og 3. mgr. 4. gr. bókunar 9 EES, séu þó eingöngu í höndum aðildarríkjanna.56 íslenska og norska ríkið sem og ESA hafa samkvæmt framansögðu öll tekið þá afstöðu að túlka beri 3. mgr. 8. gr. EES-samningsins svo að fiskur falli ekki undir almennt gildissvið hans. Af málflutningi framkvæmdastjómarinnar sýnist hins vegar mega ráða annan skilning á 3. mgr. 8. gr. EES-samningsins. Má í því sambandi nefna að upp hefur komið ágreiningur utan réttarins milli framkvæmdastjómarinnar annars vegar og Islands og Noregs hins vegar um 54 Sjá Stefán Már Stefánsson, sbr. neðanmálsgrein 34, bls. 817-818 og bls. 820. 55 Sjá Theresa Blanchet o.fl.: The Agreement on the European Economic Area (EEA), A guide to the free Movement of Goods and Competition Rules. Clarendon Press, Oxford, 1984, bls. 243. 56 Sjá Theresa Blanchet o.fl.. sbr. neðanmálsgrein 55, bls. 180. 437
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.