Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1961, Page 5
I. STJÓRN HÁSKÓLANS
Rektor háskólans, prófessor dr. ÞorkeTl Jóhannesson, andaðist
31. október 1960. Prófessor Ármann Snœvarr tók við embætti
háskólarektors 19. nóvember 1960.
Varaforseti háskólaráðs var prófessor Ólafur Björnsson, en
ritari prófessor dr. Guðni Jónsson.
Deildarforsetar voru þessir:
Prófessor Magnús Már Lárusson í guðfræðideild.
Prófessor Kristinn Stefánsson í læknadeild.
Prófessor Ólafur Björnsson í laga- og viðskiptadeild.
Prófessor dr. Guðni Jónsson í heimspekideild.
Prófessor Þorbjörn Sigurgeirsson í verkfræðideild.
II. HÁSKÓLAHÁTÍÐ
Háskólahátíð var haldin í hátíðasalnum 1. vetrardag, 22. okt.
1960, að viðstöddum forseta Islands, ýmsum gestum, kennur-
um og stúdentum. Dr. Þorkell Jóhannesson háskólarektor stýrði
athöfninni og flutti ræðu þá, er hér fer á eftir:
Herra forseti Islands, hæstvirtu ráðherrar, sendiherrar er-
lendra ríkja og aðrir góðir gestir, samkennarar, stúdentar.
Ég býð ykkur öll velkomin til þessarar samkomu, sem haldin
er að venju í hátíðasal háskólans hinn fyrsta vetrardag til þess