Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1961, Side 6

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1961, Side 6
4 að rifja upp helztu viðburði liðins háskólaárs og veita viðtöku nýjum stúdentum. Fyrsta háskólahátíðin haldin í þessum sal fór fram 1. vetrar- dag, 26. október 1940, og er þessi samkoma því hin 21. í röðinni. Ég minni á þetta vegna þess, að ég geri ráð fyrir, að hún verði líka hin síðasta, sem hér fer fram. Næsta háskólahátíð verður að öllu sjálfráðu og forfallalausu haldin í hinu nýja samkomu- húsi háskólans við Melatorg, sem þessa dagana er að komast undir þak. Langt er síðan að þessi salur varð alltof lítill til að rúma með góðu móti árshátíð háskólans, og nú er svo komið, að hann rúmar með naumindum hina nýju stúdenta haust hvert. Er því löngu mál til komið, að hátíðin sé færð í húsakynni, sem meir séu við hæfi, og að sjálfsögðu verða þessar samkomur í framtíðinni með öðru og veglegra sniði, enda mun þá verða kostað kapps um að þátttaka eldri stúdenta verði þar með öðr- um hætti en tíðkazt hefir hér um hríð, en kalla má, að þeir séu nú með öllu útilokaðir vegna rúmleysis. Á vorum dögum fara gagnkvæm samskipti þjóða í ýmsum myndum stöðugt vaxandi. Þátttaka í slíkri samvinnu verður og æ stærri liður í starfi háskólanna. Er árlega varið allmiklu fé og starfi undir þennan lið. Er hér í fyrsta lagi um að ræða þátt- töku í samtökum háskóla, stærri og minni. Má þar til nefna Al- þjóðasamband háskóla, er Háskóli Islands á aðild að, og Sam- band háskóla í Vestur-Evrópu, er háskóli vor er enn ekki reglu- legur aðili að, en hann hefir samt um nokkur undanfarin ár fylgzt stöðugt með störfum þess. Þá hafa háskólarnir á Norður- löndum lengi haft allnáið en að vísu óformlegt samband sín á milli, og hefir Háskóli íslands tekið þátt í því. En auk funda, sem sambönd þessi standa að, eru árlega haldnar samkomur og þing háskólamanna víðsvegar af löndum í ýmsum fræðigrein- um, sem nauðsynlegt er fyrir okkur hér að eiga þátt í og fylgj- ast með. Þá ber hér að nefna fyrirlestraferðir og kynningar- ferðir háskólakennara og þátttöku í ýmiskonar hátíðahöldum. sem til er boðið gestum frá erlendum háskólum. Hér eigum við Islendingar sérstaklega óhægt um vik, vegna þess hversu langt við eigum oftast tilsóknar og ferðalög kostnaðarsöm. Af þeim
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.