Alþýðumaðurinn - 20.06.1939, Qupperneq 1
25. tbl.
IX. árg.
Akureyri, Þriðjudaginn 20. Júní 1939.
Til Alpýiuflokksfólks
K ynningarm ó t A Iþýðuflokksfélaganna
verður haldið við Sigríðarstaðaskóg á
Sunnudaginn kemur ---------------------
Ráðherra tlokksins, Stet.
Jöh. Stetánsson, og fleiri
áhritamenn flokksins
mæta á mótinu. —
Undirbúningsnefnd kynningar-
mótsins, sem sagt vsr frá í síðasta
blaði, hfcfir nú ákveðið að mótið
skuli haldið við Sigríðarstaðaskóg
á Sunnudaginn kemur. Að nefnd-
in valdi þennan stað stafar af því
að þar geta félögin verið út af
fyrir sig, og staðurinn er að öðru
leyti tilvaiinn samkomustaður. í
sjálfum skóginum er enginn sam-
komustaður, en rétt neðan við
hann, norðarlega, eru sléttar flatir,
milli hárra kjarrvaxinna hóla, sem
tilvaldar eru sem útisamkomustaðir.
Á einni þessari flöt verður sam-
komustaðurinn. Þar er fallegt um-
hverfi. Skógurinn rétt fyrir ofan og
víðsýnt um Ljósavatnsskarðið norð-
ur og suður. Austur þangað er
ágætur bílvegur, ca. 10 — 15 mínútna
keyrsla frá Fnjóská. Væntir nefnd-
in að fólkið hafi sérstaka ánægju
af að sækja þenna samkomustað,
sem, að dómi nefndarinnar, tekur
Vaglaskógi fram að mörgu leyti.
En hvað verður þá þarna til
fróðleiks og skemmtunar?
Nánari dagskrá verður birt síðar,
en nú þegar ,er hægt að taka það
fram, að þarna verða ræður fluttar
af einhverjum bestu ræðumönnurn
landsins. Pá verður sungið, farið
í útileiki og máske dansað. Veit-
ingar verða á staðnum.
Ávinningurinn við að sækja mót-
ið, auk skemmtunarinnar, er og
verður þessi:
Ráðherra flokksins skýrir frá á-
stæðunum fyrir hlutdeild fiokksins
í stjórn landsins og skýrir frá verk-
efnum og framtíðarhorfum, og mun
hrekja allt það slúður og lygi, sem
andstöðuflokkarnir hafa verið að
halda að fólkinu vegna þessara
mála. Pá mun hann og gefa yíir-
lit yfir þau mál, sem unnið verður
að á næstunni og benda á verkefni.
Er þetta allt fróðleikur, sem enginn
áhuga^amur alþýðumaður eða kona
má sleppa-
í öðru lagi kynnist fólkið frá
hinum ýmsu stöðum hvað öðru
og hittir kunningja sína, Er þetta
nauðsynlegur liður í starfinu og
eykur samhug þess fólks, sem
vinnur að sömu málefnum.
í þriðja lagi er þarna um sér-
stæð'a skemmtun að ræða, sem all-
ir flokkar stofna til, hver í sínu
lagi- Mótstöðumenn Alþýðuflokks-
ins hampa því mjög að hann sé
ekki lengur til, í raun og veru.
Að minnsta kosti vilji engir við
honum líta Iengur. Pótt Alþýðufl.
samanstandi eingöngu af fólki, sem
á erfiðara um vik að fjölmenna á
samkomur, en yfirlýður landsins,
er honum full nauðsyn að sýna sig
á þessu sviði sem öðrum. Hér er
því ágætt tækifæri til að reka ó-
sannindin ofan í óvini flokksins
með því að sækja vel þetta mót.
um leið og fólkið fær sér skemmti-
túr út úr bænum í félagi við vini
og vandamenn. Enginn, sem nokk-
ur tök hefir á að vera með, má
því láta sig vanta.
Bílfar austur á skemmtistaðinn
verður svo ódýrt, sem framast er
unnt. Fólk mun geta valið um
langferðabíla og »boddy«-bíla með
misjöfnu gjaldi. Mótið mun hefjast
kl. 2 e. h. svo fólk getur verið
búið að borða sinn miðdegismat
áður en það leggur af stað. og
heim verður haldið fyrir »skikkan-
legan« háítatíma.
Síðar í vikunni muu verða geng-
ið með lista meðal félaganna.
Þeir mega hafa með sér vini, vanda-
menn og góða kunningja. Einnig
verður öðru góðu alþýðufólki gefið
tækifæri að vera með og getur það
í því tilefni snúið sér til einhvers
af eftirtöldu nefndarfólki fyrir Föstu-
dagskvöld- Halldórs Friðjónsson-
ar, Helgu Jónsdóttur, Árna Þor-
grímssonar, Erlings Friðjónssonar,
Önnu Helgadóttur, Jóns Hinriks-
sonar og Jóns Sigurðssonar erind-
reka- Einnig taka F. U. J. félagar
móti pöntunum.
Verið allir með! Sækið kynn-
ingarmótið, ykkur til fræðslu og
skemmtunar! Akureyringar! —
sýnið félögum ykkar, sem koma
lengra að, og vonast eftir að
hitta ykkur við Sigríðastaða-
skóg á Sunnudaginn, að þið
látið ekki standa á ykkur!