Alþýðumaðurinn - 20.06.1939, Síða 2
2
alÞýðumaðurinn
Ávarp til allra
íslendinga.
Sið3n útsala sterkra áfengra
drykkja hófst á ný hér á landi
1935, hefir það komið æ betur
og betur í ljós, að þörfin fyrir
drykkjumannahæli væri svo brýn
og aðkaliandi, að öllu lengur yrði
ekki daufheyrst við þeirri menn-
ingar og mannúðarskyldu að
koma slíku hæli á stotn.
Þegar við lítillega athugun, sem
gerð var um það leyli á málinu,
kom það i Ijós, að í næstum þvi
öllum kaupstöðum landsins, og
þó einkum i Reykjavík, væru all-
margir menn, sem lögreglustjór-
ar álitu að nauðsynlega þyrftu
hælisvistar með. Síðan hefir þetta
aukist og margfaldast, eins og öll-
um nú er ljóst. Enda er það mála
sannasl, að naumast er nokkur
krafa, sem befir fengið jaín ein-
róma undirtektir manna, eins og
krafan um drykkjumannahælið.
Hafa m. a. margir læknar tekið
undir hana, og geðveikralæknir-
inn dr. Helgi Tómasson rökstutt
hana opinberlega.
Þegar frú Guðrún sál. Lárus-
dóttir flutti frumvarp sitt um
drykkjumannahæli, undirrituðu
fjöldi mætra manna hér í Reykja-
vík — og þar á meðal margir lækn-
ar — áskorun til Alþingis um að
setja lög um drykkjumannahæli.
Þetta allt bendir til, að allir séu
á einu máli um nauðsyn á fram-
kvæmdum. — Nú er enn á ný
tilbúiö frumvarp til laga í þessu
máli, sem væntanlega verður lagt
fyrir Alþingi, þegar það kemur
saman á ný — og vonandi nær
samþykki.
En hér þarf meira til en lög.
Hér þarf samstillt átak og vilja
alþjóðar. Allir þurfa að sýna það
í verki, að þeir hafi vilja til að
leysa af hendi mannúðarskyldu
og sýna bágstöddum meðbræðr-
um kærleiksþel. — Eitt mikils-
vert menningarmál hefir verið
leyst þannig með samstilltu átaki
mannúðar oá\mannkærleika. Það
var þegar Ríkisspítalinn var reist-
ur. Nú þarf eitt slikt átak til.
Alþjóð er nú orðin kunn hin
höfðinglega gjöf Jóns Pálssonar
fyrv. bankagjaldkera, er hann hef-
ir afhent ríkisstjórninni 20.000 kr.
til stofnunar drykkjumannahælis.
Sá sjóður þarf að aukast til muna,
til þess að hælið geti orðið það,
sem það þarf að vera.
Þess vegna skal nú skorað á alla
íslendinga að fylgja hinu fagra
fordæmi Jóns Pálssonar, sýna að-
þrengdum olnbogabörnum þjóð-
félagsins drenglyndi og mannúð,
leggja sinn skerf til — stóraneða
lítinn eftir getu — og bjarga mál-
inu í höfn.
Við erum að vísu fáir og fátæk-
ir íslendingar. En við getum mik-
ið, ef kærleikurinn og mannúðin
fá að ráða.
Öll blöðin hér í bænum hafa
góðfúslega lofað að taka móti
samskotum í þessu skyni. Og hér
með er heitið á allar Góðtempl-
arastúkur landsins, öll ungmenna-
félög og kvenfélög að gera slíkt
hið sama og beita sér fyrir mál-
inu. Allir verða að hjálpast að
með að vinna gott verk.
Friörik Ásmundsson Brekkan
ráðunautur ríkisins í áfengismálum.
„Ólag“.
> ísl.« finst »ólag« á Alþýðu-
manninuru af því hann skýrði frá
sleifarlaginu, sem verið hefir á fiam-
kvæmd rafveitubyggingarinnar. Vill
blaðið álíta að þar hafi allt verið-
og sé f himnalagi. Blaðið skal þó
hrellt með því að skýra enn frá,
að um síðuslu helgi var enn ekki
búið að losa rafveiíuna við aíla
utanbæjarmenn, þótt það starf væri
haíið strax eftir að Alþm. benti á
að þeir ættu þar ekki að vera. Og
um efnisforðann mun reynslan sjálf
skera úr málum.
Ábyrgðarmaður.
Erlingui Friðjónsson.
Úr bæ og byggð
Bindindismannamótið í Laugaskóla
^dagana 17. og 18. þ. m. var prýði-
ega sótt. Munu aökomugestir hafa
verið hátt á fjórða hundrað síðart
daginn. Var mótið sótt af fulltrú-
um frá bindindisfélögum (Góðtempl-
arstúkum, ungmennafél., bindindisfélj
úr Eyjafjarðarsýslu og Pingeyjar-
sýslunum báðum. Einnig mættu
fulltrúar frá Stórstúku íslands. Sýndi
sóknin á mótið, allt norðan úr
Þistilfirði lengst að, óvenjumikinn
áhuga manna og ber þes» ljósan
vott hve bindindismálið á sterk ítök
í hugum manna, þrátt fyrir mikla'
áfengisneytsiu þjóöarinnar.
íþróttafélögin víða um land héldu
17. Túní hátíölegan, til ágóða fyrir
starfsemi sína. Hér á Akureyri
gengust öll íþróttafélögin fyrir sam-
komu á Ráðhústorgi, þar sem Sig.
Eggerz flutti ræðu og »Geysir«
söng, og íþróttasýningu úti á leik-
velli. Hvorutveggja samkoman var
vel sótt. Einnig var merkjasala um
daginn til ágóða fyrir væntanlegt
íþróttahús í bænum. Mun hafa
safnast töluvert af fé í sjóö iþrótta-
hússins. Dansleikur var í Sam-
komuhúsinu um kvöldið.
17. Júní var einnig hátíðlegur
haldinn í sýningardeild íslands á
heimssýningunni i New-York. Var
hátíðahöldunum þar útvarpað og
endurvarpað gegnum útvarpsstöðina
í Reykjavík. Thor Thors alþingism.
flutti aðalræðuna fyrir hönd íslands.
Ameríkumennirnir báru í ræðum
sínum mikið lof á íslensku þjóðina.
Einn þeirra taldi hana merkustu
þjóð í heimi.
Síldarlaust er ennþá úti fyrir
Norðurlandi, en síldaráta er sögð
mikil í sjónum. Undanfarið hefir
líka verið norðaustsn vindstrekking-
ur hér úti f\7rir og hefir það bæð*
hamlað síldarleit og líkum fyrir veiði,
Kennarasamtökin í landinu eru
50 ára um þessar mundir. í tilefni
af þessu fara fram hátíðahöld í
Rvík og uppeldismálaþing stendur
þar yfir.