Hugur - 01.01.2002, Side 29

Hugur - 01.01.2002, Side 29
Heimspeki margfalds persónuleika Hugur Philologus sest niður til að skrifa um það hvernig bók - bók sem hann þekkir reyndar ekki sjálfur - geti skýrt þegar setningar hennar eru merkingarlausar. Hvernig getur falist skýring í merkingarleysu? Og hvernig getur bók sem er sett saman úr merkingarlausum setningum tekist að draga nokkur mörk? Philologus kemst í ritgerð sinni að því að bókin geti ómögulega hafa skýrt nokkuð eða dregið nokkur mörk ef setn- ingar hennar eru merkingarlausar, hvaða setningar sem þetta hafa ann- ars verið. Hér kemur Commentarius aftur fram á sjónarsviðið. Hann skrifar langar athugasemdir við grein Philologusar í ljósi þekkingar sinnar á Tractatus logico-philosophicus. Þar lýsir hann því yfir að mark- mið hans með því að birta grein Philologusar ásamt formála sínum og athugasemdum í einni bók sé að líkja eftir formi Tractatus logico-philos- ophicus. Eins og verk Wittgensteins eigi þessi bók að vera stigi sem les- andinn verði að lokum að varpa frá sér. Eg er ekki Commentarius frekar en ég er Philologus. En hver er þá Commentarius? Commentarius segist samþykkja ákveðna túlkun á Wittgenstein sem er rædd mikið um þessar mundir - túlkun sett fram af Cora Diamond og James Conant. Samkvæmt þessari túlkun miðla setningar Tractatus logico-philosophicus lesandanum engri þekkingu um mörk tungumáls, merkingar eða hugsunar eða um eitthvað annað. Nú er það svo að Commentarius er ekki trúr sinni eigin túlkun, án þess að ég segi það í bókinni. Eg læt lesanda minn um að dæma um hvort Commentarius er sinnar ógæfu smiður eða hvort slík örlög séu búin hverjum þeim sem setur fram slíka túlkun. 1 nýlegum, og mjög lofsamlegum, ritdómi um bókina í Skírni fyrir skömmu, sagði Kristján Kristjánsson augljóst að þú héldir fram túlkun Commentariusar - efþað er rétt talar þú varla tungum tveim eða hvað? Eg vil nú byrja á því að þakka Kristjáni fyrir andríka og fágaða um- fjöllun um bækurnar mínar. En hér skjátlast honum. I einu neðanmáls- grein Stiga Wittgensteins sem er eftir Loga Gunnarsson er gefið í skyn að yfirlýsing Loga í upphafi bókarinnar sé stæling á „Fyrsta og síðasta yfirlýsing" eftir Spren Kierkegaard, sem er að finna aftan við bókina Af- sluttende uvidenskabelige Eftirskrift til de philosophiske Smuler, sem Ki- erkegaard birti undir nafninu Johannes Climacus. I þessari yfirlýsingu viðurkennir Kierkegaard að hann hafi gefið út tilteknar bækur undir ýmsum dulnefnum, en segir að ekki eitt einasta orð í þessum verkum sé hans eigið. Með þessari yfirlýsingu var Kierkegaard að bregðast við túlk- endum sem lásu verkin eins og hann - Kierkegaard - væri Climacus eða einhver af höfundum hinna bókanna sem hann viðurkennir að hafa skrifað. Auðvitað breytti yfirlýsing Kierkegaards ekki miklu. Allt fram á 27
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.