Hugur - 01.01.2002, Side 32

Hugur - 01.01.2002, Side 32
Hugur G.E.M. Anscombe án þess að tala um „athöfn“ og ef við finnum hann uppgötvum við ef til vill hvað er átt við með „athöfn“ þegar það er sagt með þessari sérstöku áherslu. Við vörpum varla ljósi á neitt með því að segja „þegar einhver hrekkur við er ‘ástæðan’ orsök“ þar sem orsakarhugtakið er of óljóst. Það eina sem við vitum er að um er að ræða eitt af þeim tilvikum þar sem við not- um orðið „orsök“. En við vitum líka að þetta er fremur óvenjulegt tilvik af orsökun; sá sem talar getur bent á orsök hugsunar, tilfinningar eða líkamshreyfingar á sama hátt og hann getur sagt frá staðsetningu sárs- auka síns eða stöðu útlima sinna. Slíkar yfirlýsingar eru ekki byggðar á athugunum. Við getum ekki heldur sagt: „Nú, svokölluð ástæða hreyfingar er orsök en ekki ástæða í skilningnum „ástæða til athafnar" þegar hreyfingin er óviljandi. A hinn bóginn er um að ræða ástæðu fremur en orsök þegar hreyfingin er framin af ásetningi.“ Ástæðan er annars vegar sú að til- gangur þessarar rannsóknar í heild er í raun að varpa ljósi á hugtök á borð við viljandi og af ásetningi og hins vegar að einnig má benda á „ástæðu“ sem einungis er „orsök“ fyrir því sem er viljandi og framið af ásetningi. Til dæmis: „Hvers vegna gengurðu svona fram og aftur?“ - „Það er lúðrasveitin sem æsir mig svona.“ Eða „Hvað fékk þig til að skrifa undir skjalið á endanum?“ - „Hugsunin um að það væri skylda mín hélt áfram að sækja á huga minn þar til ég sagði við sjálfa mig: ‘Ég get ekki annað’ og skrifaði svo undir.“ Nú getum við séð að þar sem þessi vandi kemur upp er orsökin sjálf, sem orsök (eða kannski við ættum frekar að tala um orsökunina), meðal þess sem vitað er án frekari athugunar. Ég mun kalla þá gerð orsakar sem hér um ræðir andlega orsök. And- legar orsakir eru ekki aðeins mögulegar sem orsakir athafna („her- göngutónlistin æsir mig, þess vegna geng ég fram og aftur“) heldur líka sem orsakir tilfinninga og jafnvel hugsana. Þegar athafnir eru skoðaðar er mikilvægt að greina milli andlegra orsaka og hvata. Þegar litið er til tilfinninga, svo sem ótta eða reiði, er mikilvægt að greina milli andlegra orsaka og viðfanga tilfinninganna. Lítum á nokkur dæmi þessu til skýringar: Barn sá rauðan efnisbút á stigapalli og spurði hvað þetta væri. Því heyrðist barnfóstran segja að þetta væri bútur af Satani og varð mjög óttaslegið. (Fóstran hefur væntanlega sagt að búturinn væri af satíni.) Það sem barnið hræddist var efnisbúturinn en það voru orð fóstrunnar sem voru orsök óttans. Viðfang ótta getur verið orsök hans en, eins og Wittgenstein bendir á (Philosophical Investigations, § 476), er viðfangið ekki sem slíkt orsök óttans. (Ogurlegt andlit á glugga mundi að sjálf- 30
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.