Hlín - 01.01.1931, Page 8
Fundargerð
aðalfundar Sambands norðlenskra
kvenna árið 1931.
Mánudaginn 15. júní 1931 var Sambandsfundur
norðlenskra kvenna (hinn 18.) haldinn í Reykjaskóla
í Hrútafirði, Vestur-Húnavatnssýslu.
Mættir voru varaformaður, ritari og 11 fulltrúar.
Aðalformaður gat ekki mætt sökum veikinda.
Einnig sat fundinn heiðursfjelagi Sambandsins,
Halldóra Bjarnadóttir, og tvær lconur úr stjórn Kven-
fjelagasambands íslands, Ragnhildur Pjetursdóttir og
Guðrún Pjetursdóttir.
Kl. 1 eftir hádegi hófst fundur með guðsþjónustu,
sem haldin vár af sjera Jóni Guðnasyni.
Um leið og varaformaður, Ingibjörg Eiríksdóttir, setti
fundinn, bauð hún allar fundarkonur velkomnar.
Vararitari kosin: Guðríður Líndal.
Jónína Líndal mintist látinnar fjelagskonu, Aðal-
heiðar Jónsdóttur, Hrisum. Sagði að með henni hefðu
þær mist eina sína mikilhæfustu konu. Stóðu allar
fundarkonur upp í virðingarskyni við hina látnu.
Tekið fulltrúatal:
»Kvennabandið«, V. Húnavatnssýslu:
Jónína S. Líndal.
Kvenfjelagið »Freyja«, Þorkelshólshreppi: