Hlín - 01.01.1931, Page 14
12
Hlin
200.00, gjaldkeri og ritari kr. 50.00 hvor á ári, og var
það samþykt.
58 konur sátu fund þennan dag.
Fundargerðin lesin upp og samþykt.
Fundi slitið.
Ingibjörg Eiríksdóttir,
fundarstjóri.
Lwiifey Pálsdóttir, Guðríður S. Líndal,
fundarritarar.
Þessi sambandsfundur norðlenskra kvenna var hald-
inn á vegum »Kvennabandsins«, sem er samband Kven-
fjelaga í Vestur-Húnavatnssýslu, en aðalumsjón og
frammistöðu höfðu konur í Kvenfjelagi Staðarhrepps,
og gerðu það með þeirri snild og prýði, að fundarkonur
munu þess lengi minnast með þakklæti.
Að kveldi hins fyrra fundardags flutti Helgi Valtýs-
son, kennari, fyrirlestur og skemti einnig fundarkon-
um með kvæðaupplestri.
Síðari daginn horfðu konur á sundleikni barna og
kl. 9 að kveldi settust allir að kaffisamdrykkju og
skemtu sjer við ræðuhöld, söng og hljóðfæraslátt langt
fram á nótt.
Að fundinum loknum fóru nokkrar fundarkonur út
á Blönduós að heimsækja Kvennaskólann og skoða
handavinnusýninguna, sem þá stóð yfir.