Hlín - 01.01.1931, Page 60
58
Hlín
spunnu og handofnu Khaddar, að það útiloki öll erlend
fataefni«.
Enginn má ætla að hreyfing þessi sje vindbóla ein,
sem hjaðnað hafi jafnharðan. Nei, í 10 ár hefur Gandhi
háð látlausa baráttu fyrir þessu máli og unnið mjög
mikið á, enda vill mikill hluti þjóðarinnar sitja og
standa eins og hinn mikli og ágæti leiðtogi hennar vill.
Gandhi trúir á rokkinn sem meðal við fátæktinni.
Heimilisiðnaðurinn og mentun á þjóðlegum grundvelli
álítur hann áhrifamestu meðulin í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar.
(Tekið úr bók síra Fr. Rafnars: Mahatma Gandhi).
Ndmsskrá i handavinnu og skólasýning.
Til stjórnar Kenncurasambands íslands, Reykjavílc.
Þar eð jeg, því miður, ekki get setið þing Kennara-
sambandsins, leyfi jeg mjer hjer með að senda tillögur
mínar um umbætur á handavinnukenslunni í barna-
skólum skriflega, í þeirri von að þingið taki þær til
rækilegrar athugunar og geri' tillögur um þær.
Jeg legg til:
1. Að kennaraþingið kjósi nefnd, er þegar á þessu
ári leggi fyrir fræðslumálastjórn landsins tillögur um
námsskrá í handavinnu fyrir kaupstaða- og sveita-
skóla.
2. Að Landssýning verði haldin 1935 á allri skóla-
handavinnu og að slík sýning verði jafnan haldin á 10
ára fresti.
Að kennaraþingið kjósi nú þegar nefnd, er starfi að
undirbúningi þessa máls.