Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 67
Hlín
65
HEIMILISIÐNAÐUR
Norræna heimilisiðnaðarþingið.
Halclið í Reykjavík 1948.
Útvarpserindi.
Kæru landar. Sitjið heil!
Það er ekki hægt að segja nei við því, sem Helgi
Hjörvar biður um, svo fast gengur hann eftir bónorð-
inu — Þessvegna er jeg hjer kornin að hljóðnemanum
og hef tekið að mjer að segja nokkuð frá 6. þingi norræna
heimilisiðnaðarsambandsins, er lialdið var hjer í Reykja-
vík dagana 11.—14. júlí þetta ár.
Síðasta heimilisiðnaðarþingið var haldið í Stokkhóhni
1937, nokkru fyrir heimsstyrjöldina, en á því þingi var
samþykt að næsta þing ætti að lialda á íslandi. En sam-
kvæmt lögum sambandsins skal þing háð þriðja hvert
ár. Það þinghald fórst fyrir vegna heimsstyrjaldarinnar,
en í fyrra kont aftur til tals að halda þingið hjer, en vegna
ónógra farartækja og annarra örðugleika varð ekki af
því.
Þið getið verið vissir um það, hlustendur mínir, að
það var velt vöngum og talin upp mörg vandkvæði á því,
að við gætum þetta og klofið þann kostnað, sem af þessu
leiddi. — En það sem reið baggamuninn var það, að þeg-
ar við hugsuðum okkur um, sáum við, að ef við ekki
tækjum á móti þessu heimilisiðnaðarþingi Norðurlanda
nú, væru rniklar líkur til þess, að sú stjórn, sem nú situr
í hinu íslenska heimilisiðnaðarsambandi, væri þar ekki
lengur, þegar röðin kæmi að okkur næst. — En þar sitja
þau tvö, sem mest hafa unnið fyrir íslenskan heimilis-
iðnað um langan tíma og þekkja hann betur en allir
aðrir. Á jeg þar við þjóðminjavörð Matthías Þórðarson,