Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 160
158
Hlín
sem er besta land jarðar, þó eigi sje það frjóast eða heitast, og það
besta einmitt meðfram fyrir það, að það er hvorugt þetta. Og að við
Norðlingar, einkum Skagfirðingar, búum á besta bygðasvæði besta
lands! — Mæti færa ýmis rök að þessu, þó eigi verði gert í þessum
línum. — Hjer er vellíðan, heilbrigði og lilaðafli fiskjar.
Úr Borgarjirði eystra er skrifað vorið 19-18: — Jeg ætla þá helst
að segja þjer dálítið frá starfi okkar í kvenfjelaginu. í vetur gekst
fjelagið fyrir Jmiggja vikna matreiðslunámskeiði. Kennari var Guð-
rún Jensdóttir. Nemendur voru 28 (8 skólabörn, 10 stúlkur og 10
konur). Það var aðallega æfingakensla fyrir yngri nemendurna, en
sýnikensla fyrir konurnar. Við erum mjög ánægðar með árangurinn
af Jjessari viðleitni okkar að gera sjálfum okkur og öðrum eitthvað
til varanlegs gagns. Námskeiðinu lauk með prýðilega myndarlegu
samsæti, sem kennarinn sá um, með aðstoð stúlknanna. — Nú á síð-
ari árum hefur kvenfjelagið gert dálítið að því að hlynna að kirkj-
unni, meðal annars gefið henni 6 Aladínslampa. Svo hefur fólk, scm
flutt er burtu hjeðan, sýnt ræktarsemi með Jjví að gefa kirkjunni
góðar gjafir. Má Jjar til nefna vandaðan gólfdregil, fána, fallega
áletraða plötu neðan við altaristöfluna, og nú á sl. hausti tvo gull-
fallega, sjö arma kertastjaka. — Þá liefur kvenfjelagið keypt vandað
sjúkrarúm, sem er öllum hreppsbúum frjálst til afnota. I-fefur ]jað
komið í góðar Jjarfir. — Fjelagið hefur einnig, eftir getu, leitast við
að styrkja ýmis menningar- og mannúðarmálefni. T. d. lagði það
í vetur 1000 kr. í slysavarnarsjóð, gaf 500 kr. til Bygðasafns Austur-
lands og 300 kr. til Barnahjálpar Sameinuðu Jjjóðanna. — Hjer er
nú vcrið að byggja frystihús og hafnargarð. Vonum við, að Jjað livort
tveggja verði okkur lil mikils gagns og blessunar. — S.
Lögin um landnám, nýbygðir og endurbyggingar í sveitum frá
1946 eru stærsta framfaraspor til hjálpar landbúnaðinum. Með Jjeim
var ákveðið að leggja fram 5 miljónir króna á ári í 10 ár til Jjessara
mála.
Skrijað af Rangárvöllum á jólaföstu 1917: — Hjeðan er alt gott
að frjetta. Nú höfum við fengið ágæta tíð, síðan veturinn byrjaði,
en blessað sumarið var slæmt. Hekla gamla rýkur og sýður altaf
jafnt og þjett. Hún hefur samt furðu lítið gcrt á hluta okkar, sem
búum þetta langt frá. Við sjáum hana altaf, þegar við viljum, út
um eldhúsgluggann. Mig langar ekkert til að fara nær henni. En
Jjað eru ekki allir eins. Fólkið streymir til hennar um hvei ja helgi,
jafnt í skammdeginu og í sumar. Það notar snjóleysið. Hjer get jeg
ekki sagt að sjáist snjór.
Úr Austur-Shaftafellssýslu er skrifað haustið 1917: — Við hjer í
Austur-Skaftafellssýslu stofnuðum Kvenfjelagasantband fyrir sýsluna
í vor með 5 fjelögum og gengum svo í Kvenfjelagasamband íslands.