Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Page 81

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Page 81
79 alvarlegur, en samt stöðugur og stilltur; dugi það' eigi, svo reyn að vinna það með því, að horfa á það þegjandi, fast og lengi; dugi þetta eigi heldur, þá beit stilltum, en staðföstum strangleik, unz það gegnir. En gáðu samt fyrst vel að, livort þrályndi þess ekki er að kenna kulda, liörku og ónotum þín eða ann- ara. Svara svörulu barni út af, samt með réttlæti. En gæt þess, að með ranglæti þínu getur þú sjálfur oft verið orsök til þess, að það er hortugt. Sýndu frömu ocj óskammfeilnu barni alvöru, og lát það sjá skömm sína; en gæt þess samt, að þú meðranglæti þínu eða klaufahætti getur oft verið orsök til þess, að það verður ósvífið. Vertu hreinskilinn, strangur og aðgæzlusamur við hrekkvíst barn. En gættu þess. vel, að hrekkvísi þess, brögð og ósannindi getáverið komin af kúgun hjáþér eða öðrum. Harðstjórnin er móðir- hræsni og lygðar. Viti börn og undirgefnir, að þeir eigi von á hörðu, hvað lítið sem þeim verður á, og það þótt óviljandi sé, þá er þeim nokkur vorkunn, þótt þeir reyni að beita brögðum, til þess að kom- ast hjá hegningu. Trúðu því líka barni fyrir ein- hverju, til þess að kenna því ráðvendni. Heimtu- frekt og vanþakldátt barn er oft leiðindagripur. Of- mikið dekur gerir mörg börn liamslaus í kröfum sínum við aðra. Og eg mótmæli því alveg, að láta eins við börn eins og stundum, einkum erlendis, er látið við höfðingja- og auðmannabörn. Menn gera þau að gikkjum með þessum sífelldu gjöfum. Að gefa fátækum börnum, eða börnum velgjörðamanna sinna, eða sérlega góðum og námfúsum börnum, er gott ogfagurt. Enaðtroða gjöfum í börn, reglulaust og án tillits til þarfar og verðleika þeirra, er mjög óþarft Elska og blíða við börn getur mjög vel samþýðzt:

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.