Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 12

Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 12
SAMTÍÐIN virðist skýringin ekki sennileg. Það er of mikið græskulaust gam- an í sögunum til þess. Það kennir blátt áfram engrar tilfinningar fyrir andlegri hættu í þeim. Fyrir því er hitt líklegra, að vér höfum í þessum sögum tjáning þess strengs í hugarfari þjóðarinnar, sem léttlyndari var, bjartsýnni og vonbetri heldur en t. d. kennir í sögunni um Loft. En þótt Sæmundur fróði sé frægastur galdramaður í íslensk- um sögnum, leikur naumast vafi á því, að sagan um Loft segi oss miklu meira um liinar alvarleg- ustu og mikilsverðustu hugar- hræringar í sambandi við galdra- trúna. Og eitt stórfeldasta ein- kenni sögunnar er, hveniig skilið er við Loft sjálfan. Sorgarleikur- inn er leikinn til enda að fullu. Vér sjáum fyrir oss þennan ein- mana mann með hjartað þrungið af öi’væntingu. Hann trúir á guð, en fær ekki beðist fyrir. Hann fylgir prestinum, er hann þjónust- ar dauðvona menn, en allar helg- ar athafnir eru honum sjálfum einkisvirði. Hann fær ekki einu sinni iðrast, og veit hann þó, að gæti hann iðrast, þá stæði hann „þegar í forsælu fyrirgefningar- mnar“, eins og Jóhann lætur hann segja. Hann getur aðeins eitt gert — beðið eftir hinum voðalegu lyktum. Og sagan skilur ekki við hann, fyr en hin gráa loðna hönd hefir tekið um skut lífsbáts hans og fært alt í kaf. 8 Ég hefi haldið því fram, að bak við söguna af Lofti væri ákveðin tegund af vanmáttar-tilfinningu. En þó svo sé, þá er styrkurinn mikill bak við þessar lyktir sög- unnar. Samkvæmt lífsskoðun og viðhorfi þátímans var það hugs- unarrétt afleiðing af lífi Lofts, að hann skyldi ienda þar, sem hann lenti og glatast með öllu. En ekk- ert hefði verið hægara fyrir al- þýðu, sem sögunasamdi,enaðfinna einhvei’ja leið,einhverja björgfyr- ir hinn ólánssama mann. Hún gat t. d. látið kraftaverk verða, sem hrifsaði Loft, iðrandi syndara á síðustu stundu, úr hinni illu, loðnu loppu. Og enginn fær lesið söguna án þess að finna til þess, að þjóð- ina hefir langað til þess, að ein- hver slík lausn væri hugsanleg. Það er göfug samúð í þessari lýs- ingu á atferli Lofts, eftir að hann hefir orðið fyrir hinum miklu von_ brig^pm og sér fyrir sín eigin for- lög: „Loftur stóð stundarkorn höggdofa í stólnum og lagði höf- uð í hendur sér, stumraði síðan hægt ofan og fann félaga sinn; stundi hann þá við og mælti: Nú fór ver en skyldi“ o. s. frv. Og það er vissulega ekki presturinn einn, sem finnur til, er hann mælir fyrir múnni sér: „Guð má vita, hvort þessum manni verður bjargað, og hvort ekki liggja kröftugri bænir móti honum en mínar". En þrátt fyrir alla löng- un til þess að bjarga Lofti, þá er fólkið sjálfu sér trútt og rekur

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.