Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 31

Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 31
S AMTÍÐIN ÞRÁTT FYRIR KREPPUNA EFTIR SIGRID BOO AXEL 0UÐMUNDSSON ÍSLENSKAÐI I. Foreldrar mínir hljóta að hafa verið ákaflega bjartsýn í gamla daga. Það sést best á því, að hau hafa sett sjö börn inn í heiminn, þrátt fyrir það, að faðir minn hafði, hefir, og mun altaf hafa skorin og skömtuð laun. Sjálf eru þau þó ekki sömu skoðunar. Þau vilja ekki heyra minst á hugrekki í þessu sam- bandi. Mamma fyrirbýður okkur meira að segja að minnast á slíkt. Einar, sem er elstur og bestur af okkur, lítur þá viðvörunaraugum hringinn í kring, til þess að við skulum ekki svara aftur, en Axel, sem er nýkominn í læknaskólann °S gjarna vill tala fagmannlega um vandamálin, tekur bendingu sjaldan fyr en í fulla hnefana. — Vertu róleg, mamma, segir hann og setur upp kuldalegan læknissvip. Ég geri ráð fyrir, að góðærin á þeim tíma hafi átt sinn þátt í þessu furðulega bjartsýni. Hugrekki foreldra minna, eink- um siðferðilegt hugrekki, er ekki á marga fiska. Þegar þau deila við okkur krakkana, knýja þau skoðanir sínar fram með valdi. Og bjartsýn geta þau því miður varla talist lengur. Það þarf ekki annað, en að eitthvert okkar fari í þunna sokka, til þess að þau geri sér alskonar grillur. Ég held það líði varla sá dagur, að þau hristi ekki höfuðið, og býsn- ist yfir þessum síðustu og verstu tímum, sem við lifum á. Mona vinstúlka mín, sem á þrenna ný- tísku foreldra, kemst miklu bet- ur af við þá, en ég við þessa einu af gamla skólanum. Það er sjaldan friðsamt á heim- ili þar sem sjö börn, á mismun- andi reki, hafa sínar ákveðnu skoðanir um alt milli himins og jarðar. Allar pólitískar stefnur eiga málsvara í fjölskyldunni. Pabbi hefir jafnan verið vinstri- maður, en verður meira og meira hægfara með hverju árinu, sem líður. Einar er fæddur íhaldsmað- ur, en Axel er áhangandi ein- hverrar háskólaklíku, sem leikur kommúnista, og verður tíðrætt um hinn beiska raunveruleika lífsins. Við stúlkurnar skiftum okkur niður á hina flokkana. Það er því heldur en ekki róstu- samt, þegar kosningar standa fyrir dyrum. Þá gerir mamma ekki annað en að hlaupa úr einu herberginu í annað, og minna á, að fleira fólk búi í húsinu. Axel hefir yndi af því, að ganga fram af gamla fólkinu með ósæmilegu tali. Hann segist ekkert föðurland eiga, og þar fram eftir götunum. En ef það færi á knattspyrnukappleik — 27

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.