Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 29

Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 29
S AMTÍÐIN fjörugu frásögn og æfintýrablæ á köflum, og gefur gott yfirlit yfir sögu vora og nútíðarmenningu. GIR. Ný bók um Tegnép Flestir kannast hér við Tegnér, fyrst og fremst af Friðþjófssögu, sem Matthías þýddi, og var um eitt skeið mjög vinsæl, þó að nú muni hún vera lítið lesin. Tegnér er einn af öndvegishöfundum norrænna bókmenta og sífelt er allmikið um hann skrifað. Ein- hver nýjasta bókin er eftir Jör- gen Bukdahl og heitir „Det eu- ropæiske menneske. Tegnér og nutiden“. Hann álítur að Tegnér liafi fyrst og fremst verið sér- kennilegur Evrópumaður, meiri og betri fulltrúi víðsýnnar og heil- brigðrar Evrópumenningar, en flestir eða allir aðrir í norrænum bókmentum. Tegnér, Grundtvig og Wergeland eru að hans áliti forustumennii’nir og sérkennileg- ustu mennirnir í menningu síð- ustu mannsaldranna á Norður- löndurn. Bókin er frernur menn- ingarsöguleg, eða menningarsál- fræðileg tilraun, en verk um Tegnér sjálfan. — Höfundurinn kemur víða við, segir ýmislegt skemtilega og skarplega, eins og í fyrri bókum sínum, þó að sumt af því verði nokkuð laust í reip- unum. V. Þ. G. Æska i Þýskalandi. Ernst Toller, hinn alkunni leik- ritahöfundur, hefir skrifað bók, sem heitir Æska í Þýskalandi. (Ein Jugend ir. Deutschland) og er það einskonar æfisaga sjálfs hans, en hann er nú landflótta, eins og fleiri þýskir höfundar. í bókinni rekur Toller ýmsar æsku- minningar sínai’, lýsir uppvexti sínum og þeirn áhrifum, sem hann vai’ð fyrir í foreldrahúsum — foreldrar hans voru Gyðingar. — Síðan lýsir hann stúdentsái’um sínum, þátttöku sinni í stríðinu og í byltingartilraununum á eftir, en hann var aðalmaðurinn í liinni mishepnuðu tilraun til þess að koma á ráðstjórnarríki í Bay- ern. Svo lýsir liann afstöðu sinni til Gyðingarnálanna, sem orðið hefir til þess, að hann er nú út- lægur úr Þýskalandi. IJann segir hispux’slaust og vel frá og fróð- lega fyrir þá, sem forvitni er á því að kynnast slíkum málum frá þeiri’a sjónarmiði, sem nú hafa oi’ðið undir í streitunni í þýsku þjóðlífi. Síðasta bók Johans Bojer heitir Huset og lxavet. Þar er lýst upp- gangs- og braskárunum í Noregi meðan heimsstyrjöldin stóð, lífi og látum hinna nýríku, og sagt vel og fjöi’lega frá og ber mai'gt á góma, svo að bókin vei'ður læsi- leg, án þess að vera sérlega mikið listaverk. V. Þ. G. 25

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.