Fréttablaðið - 23.08.2010, Page 22
23. 2
„Við höfum fengið frábærar við-
tökur síðan við opnuðum Hrím hér
í Kaupvangsstræti í maí og svo
bauðst okkur að opna aðra verslun
í Hofi, menningarhúsinu sem verð-
ur vígt á föstudaginn,“ segir Tinna
Brá Baldvinsdóttir, annar eigenda
Hríms hönnunarhúss á Akureyri
þar sem hún er í óða önn að undir-
búa opnunina ásamt hinum eigand-
anum, Hrafnhildi Jónsdóttur.
Þær stöllur eru báðar arkitekt-
ar. Þær voru hins vegar ekki með
atvinnu við sitt fag síðastliðið vor
og ákváðu að sameina krafta sína.
Á Akureyri er líflegt listalíf en
Tinna og Hrafnhildur sáu að hönn-
uði vantaði vettvang.
„Þó að hér fáist í verslunum ein
og ein hönnunarvara þá var enginn
staður sem sinnti hönnun og arki-
tektúr eingöngu. Eins langaði okkur
að lífga upp á gilið fyrr á daginn.
Fólk er mjög jákvætt og segir þetta
kærkomna viðbót í bæinn.“
Vinnustofa Tinnu og Hrafnhild-
ar er í versluninni á Kaupvangs-
stræti og geta gestir fylgst með
vinnu þeirra. Húsnæðið sjálft var
bifvélaverkstæði í gamla mjólkur-
samlaginu og hanga enn krók-
ar í loftum. Úrvalið í versluninni
byggir á íslenskri hönnun í bland
við nokkrar erlendar vörur. Einn-
ig ætla þær sér að selja eigin vöru-
línu í Hrími og hafa þegar látið
framleiða fylgihlutasnagann Birki.
Tinna og Hrafnhildur unnu einnig
samkeppni um barmmerki fyrir
Skotturnar, samtök sem berjast
gegn kynbundnu ofbeldi og er von
á því á markaðinn fljótlega.
Í nýju versluninni munu þær svo
kynna nýjar vörur en hún verð-
ur opnuð klukkan 17 föstudaginn
27. ágúst. „Á sama tíma verðum
við með sýningu hér í Kaupvangs-
stræti. Tveir arkitektar, félagar
okkar sem voru að koma að utan
úr námi, munu setja upp tillögur
að skipulagi hér í gilinu og gest-
ir og gangandi munu einnig geta
komið með sínar tillögur að útliti,
en okkur langar að virkja fólk í að
tala um arkitektúr líka.“
heida@frettabladid.is
Hönnuði vantaði vettvang
Vinkonurnar og arkitektarnir Tinna Brá Baldvinsdóttir og Hrafnhildur A. Jónsdóttir tóku sig til og opnuðu
Hrím hönnunarhús í gilinu á Akureyri í vor. Um næstu helgi opna þær aðra búð í menningarhúsinu Hofi.
Kollarnir Volki og Fussy hafa verið vin-
sælir í Hrími en verslunin er sú eina sem
er með Volka í sölu. MYND/HEIDA.IS
Tinna Brá Baldvinsdóttir og Hrafnhildur A. Jónsdóttir arkitektar opnuðu hönnunarhúsið Hrím á Akureyri í vor. MYND/HEIDA.IS
Nýlega opnaði sýning í Vivid
galleríinu í Rotterdam á vösum
sem Ettore Sottsass hannaði árið
1970. Kallast vasarnir Yantra. Þeir
eru úr glerjuðu keramiki og í mjög
ólíkum formum og litum.
Ettore Sottsass (1917-2007) var ítalsk-
ur arkitekt og hönnuður. Hann hann-
aði allt frá húsgögnum, skartgrip-
um og skrautmunum til ritvéla.
Yantra vasar Sottsass
ÍTALSKI ARKITEKTINN OG HÖNNUÐURINN
ETTORE SOTTSASS MÓTAÐI VASA ÁRIÐ
1970 SEM STAÐIST HAFA TÍMANS TÖNN..
AURÉLIEN BARBRY er danskur hönn-
uður sem hefur hannað ansi skemmtilega
korktappa fyrir merkið Normann Copenhagen.
Laugavegi 178
Símar 551 2070 • 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18.
Lokað á laugardögum í sumar
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is Vertu vinur
ATH – NÝJA VARAN STREYMIR INN
– SAMA GÓÐA VERÐIÐ
Teg. AGATHA - push up fyrir stórar sem smáar í stærðum
A,B,C,D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 7.680,-
Taktur - Fyrir 16-30 ára. Atvinnuleitin, listahópar og margt fleira. Kl. 9 -16
Náðu settu marki - Þú getur gert, átt eða verið það sem þú vilt! Fyrsti
hluti af þremur sjálfstæðum fyrirlestrum fyrir 30 ára og yngri. Umsjón: Ólafur
Þór Ólafsson, Phoenix leiðbeinandi og LMI þjálfi. Kl.10-12
Jóga kl. 15 -16
Gönguhópur kl. 13 -14 Vinnum saman (Býflugurnar) kl. 14 -16
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is
www.raudakrosshusid.is |
Opið mánudaga til föstudaga kl. 13-16
Dagskrá vikunnar
Rauðakrosshúsið
Vikan 23. - 27. ágúst
Mánudagur 23. ágúst
Taktur - Fyrir 16-30 ára. Atvinnuleitin, listahópar og margt fleira. Kl. 9 -12
Ljósmyndaklúbbur - Við lærum saman og æfum okkur. Taktu mynda-
vélina með og fáðu góð ráð. Umsjón: Þór Gíslason, ljósmyndari. Kl.13-14
Þriðjudagur 24. ágúst
Miðvikudagur 25. ágúst - Opið 9-16
Tölvuaðstoð kl. 13.30-15.30 Briddsklúbbur kl.14-16
Lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur kl. 14-16
Miðvikudagar eru dagar unga fólksins í Rauðakrosshúsinu
Fimmtudagur 26. ágúst
Saumasmiðjan kl.13-15
Útileikfimi í Nauthólsvík - Fyrir alla sem vilja. Útileikfimi og sjósund.
Mæting í Nauthólsvík. Kl. 10
Mexíkósk matargerð - Lærðu að útbúa góðan, skemmtilegan og ódýran
mexíkóskan mat og fáðu gott smakk í lokin. Kl.13-14
Náðu settu marki - Þú getur gert, átt eða verið það sem þú vilt! Annar
hluti af þremur sjálfstæðum fyrirlestrum. Allir velkomnir. Kl.13-15
Föstudagur 27. ágúst
Taktur - Fyrir 16-30 ára. Atvinnuleitin, listahópar og margt fleira. Kl. 9 -12
Bowen tækni - 20 mín. prufutímar. Skráning nauðsynleg. Kl.13.30-15.30
Að bjarga mannslífi - Stutt verklegt námskeið í endurlífgun. Kl. 13-14
Skiptifatamarkaður - Barnaföt - skólatöskur og föt, íþróttaföt, skór og
ýmislegt fyrir veturinn. Skiptu fötum barnanna í aðrar stærðir og gerðir. Kl.16-18
Taktur - Fyrir 16-30 ára. Atvinnuleitin, listahópar og margt fleira. Kl. 9 -12
Félagsvinir atvinnuleitenda - Er verkefnið ekki eitthvað fyrir þig?
Þú getur aðstoðað eða fengið aðstoð. Kynntu þér málið! Kl. 14-15
Hláturjóga kl.15-16
Prjónahópur kl. 13 -14 EFT og djúpslökun kl. 14 -16
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447