19. júní


19. júní - 19.06.1982, Side 18

19. júní - 19.06.1982, Side 18
Sólveig Jónsdóttlr, Auöun Sæmundsson og Guörún Egilson. Guðrún Egilson. Gunnar E. Kvaran. Hugað að hornsteininum Fjórir einstaklingar skiptast á skoðunum um heimilisstörf Umsjón: Gunnar E. Kvaran og Guðrún Egilson Að fornu og nýju hefur hcimilið verið nefnt hornsteinn þjóðfélags- ins. Pær breytingar, sem orðið hafa á þjóðfélaginu á undanförn- um árum hafa vissulega snert þennan hornstcin og sumar skekið hann, en eigi að síður virð- ist hann sitja sem fastast. Til- raunir með nýja samhýlishætti hafa náð lítilli fótfestu, og stofnan- ir, scm í sumum tilvikum hafa lcyst fjölskylduna af hólmi, t.d. visthcimili fyrir þroskahefta, aldraöa og aðra, scm ekki geta húið við eðlilcga fjölskylduhætti, eru eftir föngum steyptar í sama mót og venjuleg hcimili. En þótt þessi gamli, góði hornstcinn hafi þannig haldið vclli í miklu þjóðfé- lagslcgu umróti og gjarnan sé til hans vitnaö í skálaræðum, virðist mat manna á honum vera ærið misjafnt. Til að mynda kveður félagsfræðin svo á, að heimili í nútímaþjóöfélagi sé cinungis neyzlueining. Það er hins vegar almenn skoðun, að verði inönnum á alvurlcgur fótaskortur í lífinu megi það einatt rekja til lélegra uppcldis- og heimilishátta. Að sama skapi þykja hcimilisstörf næsta lítilmótleg í þjóðfélagslegri umræðu, en hætt er við, að horn- steinninn okkar yrði ekki svipur hjá sjón, ef cnginn nennti að nostra við hunn. Pá erum við cinmitt komin að kjurna málsins. 19. júní hefur fengið fjóra cinstaklinga til að skiptast á skoðunuin um hcimilis- störf, inntak þeirru o.fl. Fólk þctta á það sameiginlegt að eiga sér hcimili og fjölskyldur, en aðstæður þess og viðhorf eru um murgt ólík. Johannn Bjarnadóttir er gift og á tvö uppkomin börn og stundar nú vcrzlunarstörf hálfan daginn. Sólveig Jónsdóttir BA. er einstæð tveggja harna inóðir og vinnur úti rúmlega fullan vinnudag. Pjóð- bjiirg Pórðardóttir er líffræðingur að mcnnt og sinnir hlutastarfi á rannsóknarstofu, cn um þcssar mundir felst starf hennar þó eink- um í umsjá heimilis hennar, eigin- manns og þriggja ungra sona. Auð- un Sœmundsson er dcildarstjóri, í sambúð og á níu ára gamlu stjúp- dóttur. Við spurðuin þau fyrst, hvort unnt væri að líta á heimilis- störf sem fulla vinnu, og voru svör- in á ýmsa lund. 18

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.