19. júní


19. júní - 19.06.1989, Page 70

19. júní - 19.06.1989, Page 70
EINLÆG AN FRÆ0IMANNSHROKA í NAFNI JAFNRÉTTIS EFTIR HELGU SIGURJÓNSDÓTTUR / nafni jafnréttis er greinasafn um femínisma, bœði um þcer hliðar hans sem mest eru ræddar og þœr sem til þessa hafa viljað gleymast. Greinunum er skipt í sex kafla eftir efni og fjalla gagnrýnið og sannleiksleitandi um allt það sem hefur verið efst á baugi í kvennabaráttunni. í nafni jafnréttis er skrifuð af mik- illi einlægni og án alls fræðimanns- hroka. Hún er ekki ein af þeim bók- um sem aðeins fáir útvaldir (eða rétt- ara sagt innvígðir) skilja. Helga kveður skýrt og sterkt að orði og hugsanir hennar eru áleitnar. Hún hrífur lesandann með. Samúð hennar með konum er djúp og heit og ekki aðeins ein stétt kvenna á samúð hennar, heldur allar konur. Hún telur allar konur vera kúgaðar í karlaveldinu og meðan þær eru sundraðar, hvort sem það er af stéttarástæðum eða öðru, verður karlaveldið áfram sigurvegari. í formálanum að í nafni jafnréttis setur Helga kvennabaráttuna í sögu- legt samhengi. Hún talar um mömmu sína og ömmu og á vissan hátt er það táknrænt, því Helga er talsmaður Móðurinnar og kvenfrels- ishugmyndafræðinnar og varar við mögulegri misnotkun á jafnréttis- 70 hugmyndafræðinni. Helga bendir á að valdhafar leggi stundum annan skilning í jafnréttishugtakið en konur og þá ekki síst kvenfrelsiskonur. Hættan er sú að valdhafar svipti minnihlutahópa þeim fáu „forrétt- indum“ sem þeir þó hafa, í nafni jafn- réttis. Enda er svo komið að jafnvel móðurrétturinn er í hættu í nafni jafnréttis. Helga gerir mjög skýran mun á hugmyndum um jafnrétti og kven- frelsi. Kvennabaráttu telur hún að megi skipta í tvö stig, jafnréttisstigið og kvenfrelsisstigið. Hún telur að hér á landi stöndum við nær jafnréttis- stiginu og segir á einum stað: „Hug- myndir kvenna um jafnrétti íranglátu þjóðfélagi eru vissulega byltingar- kenndar, en byltingarkenndari eru þó hugmyndirnar um kvenfrelsi enda hefur mér vitanlega engin ríkisstjórn tekið undir þœr. “ (bls. 93) Helga tel- ur að höfuðástæðan fyrir ósigri kvenna í baráttunni við karlaveldið sé hvað þær séu sundraðar og hefur skýringuna á því á reiðum höndum. Hún segir: „Hin dýpri og óljósari kvenfrelsismarkmið og þau sem mestu máli skipta eru erfiðari við- fangs og um þau standa konur ekki saman. Þœr greinir á um í Itverju kvenfrelsi sé fólgið. “ (bls. 93). Það er einmitt í skilgreiningu sinni á kvenfrelsi sem Helga fetar hingað til lítt troðnar slóðir. Hún segir: „Kvenfrelsi held ég sé best skilgreint nokkurn veginn svona: það er að við- urkenna Aros. Vera ekki lengur hrædd við hann, sleppa honum laus- um. Eros er heil manneskja, okkar eigin andlega heilbrigði. Hann erfeg- urðin og gleðin, hin góða jörð, hin góða móðir, afl kvenna og styrkur, sköpunarmáttur þeirra sem tilveran getur ekki verið án. Síðast en ekki síst er Eros barnið, fallegt og saklaust. “ (bls. 99). Samkvæmt þessu er kvenfrelsi frelsun sjálfsins, hins kvenlega eðlis, úr fjötrum feðraveldisins og karla- menningarinnar. Kvenfrelsi er það að konur skapi sjálfar sjálfsímynd sína, en til þess að svo megi verða þarf kvennamenningin að verða ríkj- andi. I kaflanum Klám og klámiðnaður fjallar Helga m.a. um hvernig klám- iðnaðurinn er notaður markvisst nú á dögum til að skapa ákveðna kven- ímynd sem konur eiga að gera að sinni sjálfsímynd. Klámið er því hin fullkomna andstæða við kvenfrelsi. Og þessi lítilsvirðing á ímynd kon- unnar finnst á fleiri stöðum í karla- menningunni en í kláminu. Hún hef- ur líka lætt sér inn í trúarbrögðin og túlkun þeirra. Þar eru konur taldar síðri körlum að allri gerð og kennt um hið illa í heiminum. Öll þekkjum við Sköpunarsöguna í Biblíunni og þátt Evu í fallinu. Þessi hugsunar- háttur gengur eins og rauður þráður í gegnum karlamenninguna og er jafn- sterkur enn í dag. Þess vegna er kvennamenningin eina vonin fyrir þann heim sem við lifum í. í nafni jafnréttis á brýnt erindi við alla þá sem láta sig kvenréttindamál einhverju skipta. Og bókin á ekki síður erindi við þá sem láta sig þau engu skipta. / nafni jafnréttis er bók sem er í huga lesandans lengi eftir að hún hef- ur verið lesin.

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.