Fréttablaðið - 14.12.2010, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 14. desember 2010
milljarður króna, sem þýðir að
skattgreiðendur hér á landi eru
að greiða um milljarð á ári fyrir
framleiðslu á kjöti ofan í útlend-
inga! Útflutningur á lambakjöti
fyrir allt þetta tímabil sem taflan
sýnir, 2000-2009, nemur tæpum
16.600 tonnum. Miðað við bein-
greiðslur dagsins í dag (og að þær
hafi haldið verðgildi sínu sem er
á núvirði um 350 kr. á kíló) hafa
íslenskir skattgreiðendur greitt
niður lambakjöt til útlendinga á
þessum tíu árum sem nemur 5,8
milljörðum. Í haust boðaði svo
forstjóri SS að ekki yrði hækk-
að afurðaverð til sauðfjárbænda
þar sem ljóst væri að meira en
30% af framleiðslu þeirra í ár
yrðu að fara í útflutning þar sem
miklu lægra verð fengist. Með
beingreiðslum í ár er þetta þá
komið í um átta milljarða króna
frá alda mótum!!
Og nú þarf að skerða þjónustu
á sjúkrahúsum víða um land og
biðlistar lengjast.
Nú er vitað að margar sveitir
eru frá fornu fari háðar fram-
leiðslu sauðfjár og það er mikil-
vægt að viðhalda byggð í landinu.
En það gerum við ekki með þessu
móti. Það þarf að breyta í grund-
vallaratriðum stuðningskerfi
við landbúnaðinn. Það verður að
aftengja stuðninginn framleiðsl-
unni þannig að hann hvetji ekki
til offramleiðslu eins og nú er. Og
hvar er náttúruverndarfólkið?
AF NETINU
Gjaldþrot er valkostur
Já, gjaldþrot er sannarlega kostur
og það góður kostur fyrir marga.
Ég þekki fólk sem hefur orðið
gjaldþrota og líf þeirra varð annað
og betra við það eftir það losnaði
við Þrælaböndin. Eins og staðan er
hjá mörgum þá yrði ég ekki hissa
þó svo að holskefla gjaldþrota
skelli á næstunni! [...]
Það á enginn heilvita maður að
láta bjóða sér þá afarkosti sem eru
í boði hjá svo mörgum.
Pressan.is
Bubbi Morthens
Saga hinna ábyrgðarlausu
Ábyrgðarlausir kjósendur kusu
sér ábyrgðarlausa pólitíkusa, sem
settu upp ábyrgðarlaust banka-
kerfi. Þegar það hrundi, héldu
kjósendur áfram að vera ábyrgðar-
lausir. Ákváðu ábyrgðarlaust í
þjóðaratkvæðagreiðslu, að þeir
tækju ekki ábyrgð á ábyrgðar-
lausum bönkum. Mynduðu
hagsmunasamtök ábyrgðarlausra
óráðsíumanna og neita að borga
af lánum sínum. Ábyrgðarlaust fólk
framvísar allskonar lagakrókum
gegn því að taka ábyrgð á IceSave.
Ábyrgðarleysið er alfa og ómega
þjóðarinnar. Nú vill ábyrgðarlausa
fólkið aftur hindra, að venjulegt
fólk endurheimti æru þjóðarinnar
með friðarsamningi við útlönd.
jonas.is
Jónas Kristjánsson
Stefnir – Samval er blandaður fjárfestingarsjóður með virka stýringu í skuldabréfum og hluta-
bréfum, auk sérhæfðra fjárfestinga. Við framkvæmd fjárfestingarstefnu er tekið mið af mati allra
fjárfestingarteyma og fjárfest í þeim eignaflokkum sem taldir eru ákjósanlegastir hverju sinni.
Með því að fjárfesta í Stefni – Samvali færðu aðgang að faglegri eignastýringu í einum sjóði.
Þú vilt nýta tækifærin sem
gefast og að vel sé hugsað
um fjárfestinguna þína.
Hafðu samband
Helstu kostir Stefnis - Samvals eru:
í langtímasparnaði
Stefnir - Samval
Hafðu samband við ráðgjafa okkar og kynntu þér það sem við höfum að bjóða.
Eignayfirlit 30. 11. 2010 2
Innlend
3.990kr.Verð frá
Stuttbuxur
1.990kr.Verð frá
Bolir
5.990kr.Verð frá
Peysur
3.990kr.Verð frá
Buxur
Kraftar í kögglum
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
52
23
6
11
/1
0
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
JÓLAGJÖFIN