Fréttablaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 13. september 2011 11
arionbanki.is – 444 7000
ÍS
LE
NS
KA
SI
A
KK
.IS
AR
I5
62
75
09
/1
1
Heimilisbókhald Arion banka
Bætum við
námskeiðum í
Meniga
Vegna mikillar þátttöku bætir Arion banki við tveimur ókeypis
byrjendanámskeiðum í notkun Meniga heimilisbókhaldsins.
Lærðu grunnatriðin og þú kemst að því hvað það getur
verið létt og skemmtilegt að sinna heimilisbókhaldinu.
Miðvikudagur 14. sept. Fullbókað
Fimmtudagur 15. sept. Laus sæti
Miðvikudagur 21. sept. Laus sæti
kl. 17.30 í Háskólanum í Reykjavík.
Nánari upplýsingar og skráning á arionbanki.is
HÁSKÓLATORG Konur eru 54,2 prósent
starfsfólks í háskólum í 52,9 prósentum
stöðugilda. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VINNUMARKAÐUR Starfsfólk í
háskólum landsins var 3.042 í
2.255 stöðugildum á síðasta skóla-
ári. Þetta kemur fram í tölum sem
Hagstofa Íslands birti í gær.
Starfsmönnum háskóla fjölgaði
um 119 milli ára en aftur á móti
fækkaði stöðugildum um 30.
Starfsmenn sem sinntu kennslu
á tímabilinu voru 2.128 í 1.355
stöðugildum.
Ríflega helmingur starfsfólk við
kennslu eru aðjúnktar og stunda-
kennarar eða 1.175 talsins í 535
stöðugildum. Þá eru konur 54,2
prósent starfsfólks í háskólum í
52,9 prósentum stöðugilda. - mþl
Fleiri konur vinna í háskólum:
Starfsfólki fjölg-
ar en stöðugild-
um fækkar
Þinur Dúnn Laugason
Karlmannsnöfnin Þinur, Dúnn og
Laugi hafa verið samþykkt af manna-
nafnanefnd. Þá voru kvenmanns-
nöfnin Vagnfríður, Elly og Jovina
samþykkt, en síðastnefnda nafninu
hafði áður verið hafnað. Aftur á móti
var kvenmannsnafninu Einars hafnað.
MANNANAFNANEFND
FRUMKVÖÐLAR Åsa Magnusson fremst
í flokki með öðrum þátttakendum á
frumkvöðlaráðstefnu EUWIIN í síðustu
viku. Fréttablaðið/Júlíus Valsson
NÝSKÖPUN Sænski frumkvöðull-
inn og uppfinningakonan Åsa
Magnus son hlaut æðstu verðlaun
Evrópusamtaka kvenna í ný-
sköpun (EUWIIN). Verðlaunin
hlaut hún fyrir björgunarbúnað-
inn QSAVE PRO, sem ætlaður
er björgunarsveitum, köfurum,
sundlaugarvörðum og öðrum sem
starfa við gæslu.
Af rúmlega fimmtíu frum-
kvöðlum sem kynntu hugmyndir
sínar fyrir dómnefnd voru 29
íslenskar konur tilnefndar.
Evrópuráðstefna samtakanna
var haldin í Hörpu í síðustu
viku og var þetta ein stærsta
ráðstefna frumkvöðlakvenna í
Evrópu á árinu. - jab
Svíi fékk æðstu verðlaunin:
29 konur voru
tilnefndar
VIÐSKIPTI Reginn ehf., dótturfélag
Landsbankans, skilaði 66 milljóna
króna hagnaði fyrstu sex mánuði
ársins. Á sama tímabili í fyrra
skilaði félagið 48 milljóna króna
hagnaði.
Rekstrartekjur félagsins á
fyrstu sex mánuðum ársins námu
1.411 milljónum króna saman-
borið við 965 milljónir króna á
sama tímabil í fyrra. Rekstrar-
hagnaður fyrir fjármagnsliði nam
727 milljónum króna samanborið
við 336 milljónir króna fyrir
sama tímabil í fyrra. Hækkun á
veltu milli ára skýrist af stærra
eignasafni. Verðmæti eignasafns
félagsins nam um mitt ár í fyrra
um 23 milljörðum króna saman-
borið við 34 milljarða króna um
mitt ár nú.
Reginn ehf. er eigandi að
mörgum af helstu fasteignum
höfuðborgarsvæðisins eins og
Smáralind, Egilshöll, Laugum í
Laugardal og Bíldshöfða 9, auk
þróunarverkefna. Félagið á 58
fasteignir og 13 þróunarverkefni
í formi lóða eða mannvirkja í
byggingu. Stefnt er að því að skrá
félagið á markað um mitt næsta
ár. - jhh
Verðmæti eignasafns fasteignafélags í eigu Landsbankans stóreykst:
Reginn hagnast um 66 milljónir króna
SMÁRALIND Á meðal eigna Regins ehf. er Smáralind, Laugar í Laugardal og Egilshöll.
STJÓRNMÁL Gerry Stoker, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskólann
í Southampton, mun flytja opinn
fyrirlestur í tilefni af 100 ára
afmæli Háskóla Íslands á morgun,
14. september, klukkan 12.10.
Erindið fjallar um hvernig stuðla
megi að betri stjórnmálum í lýð-
ræðiskerfi. Stoker er einn þekkt-
asti stjórnmálafræðingur Evrópu.
Rannsóknarsvið hans eru sveitar-
stjórnarmál, stjórnmálaþátttaka,
stjórnmálaflokkar og styrking
borgaralegrar þátttöku í stjórn-
málum. - sv
Breskur stjórnmálafræðingur:
Fyrirlestur um
betri stjórnmál