Íslendingur - 31.10.1978, Qupperneq 6
...íþróttir...umsjón Einar Pálmi og Ragnar Þorvaldsson...íþróttir...íþróttir.
íþróttir...íþróttir.
Hér leggur Birgir Björnsson hanöknattieiKsmonnum KA lífsreglurnar
„Ég er ánægður með strákana
og við stefnum á toppsæti"
- íslendingur spjallar við Birgi Björnsson, þjálfara 2. deildarliðs KA
Það varf tæpast að kynna Birgi Björnsson fyrir handknattleiksunnendum, svo kunnur er hann fyrir
störf sín að handknattieiksmálum og hann er margfaldur fslandsmeistari með FH í Hafnarfirði. í haust
flutti Birgir sig með fjölskyldu sína norður yfir heiðar, tók við starfi öryggismálastjóra hjá Slippstöð-
inni á Akureyri og hóf að þjálfa 2. deildarlið KA í handknattleik. fþróttasíðan leit inn á æfingu hjá KA
á dögunum og spjallaði við Birgi.
Jón Hensley, form. handknattleiksdeildar KA, og Birgir.
- Mér líst skínandi vel á KA
liðið, þetta eru áhugasamir piltar
og æfingasóknin er góð, sagði
birgir í upphafi viðtalsins og við
gefum honum orðið áfram. - Önnur
deildin verður erfið í vetur og hart
barist um efstu sætin, þar sem
ekkert verður gefið eftir.
• Erfiðustsu andstœð-
ingarnir verða KR,
Armann og Þróttur
- Ég held að K.R, Ármann og
Þróttur verði erfiðustu andstæð-
ingarnir. Þau lið mæta sterk til
leiks, náðu góðum árangri i Reykja
víkurmótinu og eru svipuð að
styrkleika og 1. deildarliðin, nema
kannski þau bestu.
- Það er sextán manna hópur,
hillurnar sjálf
• Höfum fyrirliggjandi kantlímdar spónaplötur í
3 stærðum: 30x30,30x40 og 30x80. Plöturnar eru
að öðru leyti óunnar, en hægt er að fá þær litaðar
ef óskað er.
• Úr þessum þrem plötustærðum er hægt að
útbúa - samkvæmt „SYSTEM PLUS“ kerfinu -
hillur, borð, rúm og skápa, í forstofuna, svefn-
herbergið, barnaherbergið, geymsluna og raunar
hvar sem er, allt eftir liugmyndaflugi hvers og
eins.
• Plöturnar eru festar saman á hornunum með
sérstökum tengjum, sem við höfum einnig fyrir-
liggjandi úr messing í þrem gerðum.
SENDUM í PÓSTKRÖFU.
Trésmiðjan FJALAR HF.
Húsavík - Sími 41346
sem hefurstundaðæfingarnarmjög
vel. Tveir til þrír menn eru um
hverja stöðu, þannig að hugsanleg
meiðsli ættu ekki að hafa alvarlegar
afleiðingar fyrir liðið. Æfingar hafa
verið kring um 60 síðan í haust,
alltaf æft á hverjum degi, jafnvel
tvisvar á dag.
• Byggistfyrst og
fremst á liðsheild
- KA liðið byggist ekki á sér-
stökum hæfileikamönnum, sem
treyst er á. Við reynum frekar að
hafa liðsheildina jafna og áhersla er
lögð á skipulagðan leik. Með því
móti verður erfiðara fyrir andstæð-
ingana að ná tökum áliðinu með
því að gera einstaka menn óvirka,
en liðið samanstendur af ungum og
efnilegum leikmönnum, sem ásamt
þeim eldri og reyndari mynda tóða
heild.
- Það er talsvert annað viðhorf
að þjálfa lið, sem ekki hefur verið í.
I. deild áður. Strákana vantar
reynslu og þá uppbyggingu, sem
kjarni góðs I. deildar liðs hefur
öðlast með skipulegri biálfun.
• Samningur til
tveggja ára
- Það er afráðið að ég mun þjálfa
KA liðið næstu tvö árin. Mörgum
finnst það bjartsýni að koma liðinu
upp í I. deild í vetur, en ég hef samt
trú á því og við setjum það
markmið að eiga lið, sem nær
fótfestu í I. deild að ári.
- Æfingaaðstaðan er góð hérna,
jafnvel betri en í Reykjavík, þar sem
erfitt er að komast inn í hús, sem er
til vill væri þó hægt að nýta betur.
Hér njóta félögin skilnings og
góðra samskipta húsvarða og for-
ráðamanna.
- Hér vantar meiri samkeppni,
liðin æfa ekki nógu skipulega,
æfingar hefjast of seint og stólað á
að byrja rétt fyrir Islandsmót. Það
dugir ekki þegar félögin á Reykja-
víkursvæðinu hafa spilað heilt mót
og koma því betur undirbúin.
• Kann vel við mig hér
- Já, ég kann vel við mig hér, her
hef ég kynnst ágætu fólki og líkar
vel við störf mín, bæði hjá
Slippstöðinni og með handbolta-
strákunum, sagði Birgir að lokum.
Innanhústimar
í vetur
í Skemmunni:
Mánudagar:
16.15-17.00 Handb. 5. fl. karla,
17.00-17.45 Handb. byrj. karla,
17.45-18.30 Handb. 4. fl. karla,
18.30 19.30 Handb. 3. fl. karla,
19.30- 21.30 Handb. mfl. kv.,
21.30- 22.00 Handb. mfl. karla,
22.00-23.00 Handb. 1. fl. karla.
Þriðjudagar:
12.00-13.00 Handb. mfl. karla,
16.15-17.00 Karfa 4. fl. karla,
17.00-17.45 Karfa 3. fl. karla.
Miðvikudagar:
16.15 17.00 Handb. 3 fl. kv„
17.00-17.45 Handb. 6. fl. karla,
17.45-18.30 Handb. 5. fl. karla,
18.30- 19.30 Handb. 4. fl. karla,
19.30- 21.30 Handb. mfl. karla,
21.30- 22.00 Handb. mfl. kv.
Fimmtudagar:
12.00-13.00 Handb. mfl. karla,
3.30-4.30 Karfa 4. fl. karla,
17.30 Frjálsar, 21.00-22.00
Handb. mfl. karla, 22.00-23.00
Knattspyrna mfl.
Föstudagar:
18.00-19.00 Handb. mfl. karla,
22.00-23.00 Knattspyrna II. fl.
Laugardagar:
12.00-13.30 Handb. byrj. kv.
Sunnudagar:
11.00-12.00 Handb. 3. fl. kv„
12.00-13.00 Handb. byrj. kv.
Fimmtudagar í Lundarskóla:
19.00-22.00 Borðtennis.
Laugardaga í íþróttahúsinu við
Laugargötu:
13.00-14.00 Blak.
f íþróttahúsinu Glerárskóla á
þriðjudögum:
19.30- 20.30 Knattsp. 4. fl„
20.30- 20.45 Knattspyrna 3. fl„
20.45-22.00 Karfa I. fl. karla.
Miðvikudaga:
22.00-23.00 Handb. 3. fl. karla.
Fimmtudagar:
19.00-20.00 Blak, karlar
20.00-21.00 Blak, konur
Blakdeild
hjá KA
Þann 11. mars 1978 var stofn
uð blakdeild innan Knatt-
spyrnufélags Akureyrar. Fyr
irhuguð er þátttaka í annari
deild íslandsmóts B.L.Í. sem
hefst nú í nóvember. Þeir
sem áhuga hafa á að iðka
íþróttina geta komið í
íþróttahúsið Glerárhverfi
næstkomandi fimmtudag kl.
19, eða þá í íþróttahúsið
Laugargötu á laugardag kl.
13.
6 - ÍSLENDINGUR