Morgunn


Morgunn - 01.06.1981, Side 26

Morgunn - 01.06.1981, Side 26
EGILL Þ. EINARSSON: AFSTAÐA FÖLKS TIL DULARSÁL- FRÆÐILEGRA FYRIRBÆRA (Erincli á fundi Sálanannsóknafélags tslands, 5. febrúar 1981). Rannsóknir á dularsálfræðilegum fyrirbærum eiga sér ekki langa sögu, — varla lengri en frá síðustu aldamótum. Er hér átt við rannsóknir, sem jafnframt má flokka undir tilrauna- sálfræði. Brautryðjandinn á þessu sviði er líklega bandaríkja- maðurinn J. B. Rhine, en hann vann úr niðurstöðum tilrauna með tölfræðilegum aðferðum. Sú úrvinnsluaðferð hefur síðan mikið verið notuð við rannsóknir á svokölluðum dulrænum fyrirbærum og er orðin allþróuð. Með henni er metið hve marktækar þa:r niðurstöður, sem fást, eru, þ.e. hve miklar líkur eru á, að niðurstöðurnar séu einber tilviljun. Gotl dæmi um rannsóknir, þar sem beitt er tölfræðilegri úrvinnslu, eru athuganir þær, er þeir Erlendur Haraldsson og Karlis Osis hafa gert á sýnum á dánarbeði. Einnig hafa ýmsar merkilegar athuganir verið framkvæmdar á miðils- fyrirbærum, sem kunnugt er. Nýtt tímabil i sögu þessara rannsókna hefst upp úr 1960, en þá er farið að beita ýmiss konar mælitækjum, en með lilkomu þeirra hafa æ fleiri sannfærst um nauðsyn slikra rannsókna (m.a. hernaðaryfirvöld, •— ])ví miður). En hvernig stendur þá á hinni miklu mótspyrnu ýmissa vísindamanna gegn rannsóknum af þessu tagi? Ástæðurnar eru sjálfsagt margar — og sumar ef til vill að vissu leyti skiljanlegar. Ein ástæðan er hrein vanþekking, en hún er, eins og við vitum, móðir óttans. Sumir óttast sem sé, að vis-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.