Morgunn


Morgunn - 01.06.1981, Page 57

Morgunn - 01.06.1981, Page 57
NÝAl.DARKENNINGAR TÍBETANS 55 spekinemum fræðsluefni nokkuð fram á hina næstu öld. Eigi að síður eru þær fullar af merkilegri og tiltölulega auðskil- inni fræðslu. — „Hvítakynngi“ („A Treatise on White Magic“) er allstór bók, sem fjallar um manninn og stöðu hans í alheiminum og er á allan hátt merkileg og fróðleg lestrar. — Auk bóka þeirra, sem þegar hafa verið taldar, má nefna þessar: „Uppeldi á nýöld“, „Fjarhrif“, „Örlög þjóð- anna“, „Vandamál mannkyns“ og „Endurkoma Krists“, en heiti þessara bóka segja nokkuð til um efni þeirra. Grunntónn í öllum boðskap Tibetans er sá, að mannkynið standi nú á mikilvægum tímamótum, ný öld sé í aðsigi og meginmáli skipti, hvernig menn snúist við því stórkostlega tækifæri, sem þeim býðst um þessar mundir. Boðskapurinn um hina nýju heimsöld á rætur í kenning- um stjarnspekinnar og er nátengdur þeirri staðreynd, að vor- hnútur sólbaugs, sem er annar skurðpunktur sólbaugs og miðhiminbaugs, er einmitt um þessar mundir að flytjast úr Fiskamerki yfir í Vatnsberamerki. Þetta er reyndar ekki að- eins stjarnspekileg staðreynd, heldur og stjarnfræðileg, það er að segja, í þessu efni ber stjarnspekingum og hinum vís- indalegu stjarnfræðingum saman. Eins og kunnugt er, sveiflast jarðmöndullinn í sifellu eftir tvöföldum keilufleti með odd sinn í miðdepli jarðar, þannig að hann fer eina umferð á tæplega 26 000 árum, og á þessu tímabili fer þá vorhnútur eina l'erð umhverfis himinhvelf- inguna eftir stórbaug, sem skipt er i 12 jafnstór bil, og er hvert þeirra kennt við tiltekið stjömumerki í svonefndum dýrahring. Vorhnútur er þvi um 2160 ár í hverju þessara sólbaugsmerkja. Þetta er einnig staðrejmd, sem um má lesa í hverri venjulegri kennslubók i sljarnfræði og er viðurkennd af öllum, hvort sem þeir hallast að dulspekifræðum eða ekki. En samkomulag stjarnspeki og stjarnfræði nær ekki öllu lengra en þetta. Stjarnspekin kennir sem sé, að staða vor- hnúts í hverju sólbaugsmerki marki ákveðið menningarskeið á jörðinni, ákveðið skeið þjóðfélagsskipunar, þekkingar, hugs- unarhátta, trúarhragða o.s.frv,

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.