Morgunn - 01.12.1981, Blaðsíða 42
HILDUR HELGA SIGURÐARDÓTTIR:
Viðtal við Gertrude Schmeidler
Dulrœnir hœfileikar fara eftir persónúleika manna — segir
Gertrude Schmeidler, sem fœst við rannsóknir á þvi hvers
konar manngerðir það eru, sem öðrum fremur hafa til
að bera yfirskilvitlega skynjun.
(Viðtal á alþjóðlegu þingi dulsálarfræðinga í Reykjavík
í ágúst 1980).
Gertrude Schmeidler er doktor í sálarfræði frá Harvard-
háskóla í Bandaríkjunum og starfar nú við New York-há-
skóla. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti dr. Schmeidler,
er stutt hlé var gert á fyrirlestrum á þingi dulsálarfræð-
inga í hátíðasal háskólans og átti við hana stutt spjall. En
Gertrude Schmeidler var einn þeirra þátttakenda þingsins,
sem hvað lengst hefur fengist við rannsóknir á sviði dul-
sálarfræði.
„Áhugi minn á þessu sviði vaknaði árið 1942, er ég sótti
fyrirlestra sem haldnir voru um dulsálarfræði,“ sagði dr.
Schmeidler. „Upp úr því fór ég að fylgjast með tilraunum
á þessu sviði og þótti mér þær takast svo vel að ég fékk
löngun til þess að taka þátt í rannsóknastarfinu. Þessar
fyrstu tilraunir, sem vöktu áhuga minn á dulsálarfræði,
snerust um það, sem dulsálarfræðingar kalla „sheep and
goat“, þ.e. „sauðir og hafrar“, en það eru nafngiftir, sem