Morgunn - 01.12.1981, Blaðsíða 81
ritstjórarabb
175
VII. Leilað frétta
Mikilsvert er það fyrir ritstjóra að frétta frá lesend-
um, fá athugasemdir og nýtilegar ábendingar. Efni er vel
þegið, greinar, fréttir og frásagnir. Hafa ber í huga, að
áhugamál okkar er margþætt. Þótt strangar kröfur séu
gerðar til vísindamanna, sem eru á höttunum eftir nýjum
og óvéfengjanlegum staðreyndum, er engin ástæða að
hunsa lýsingar á forvitnilegum fyrirbærum og athyglis-
verðri reynslu. Kúnstin er að gleypa ekki við öllu, þótt
lagt sé við hlustirnar. Áreiðanlegasti vörðurinn gegn vill-
um og misskilningi er þekking á því besta, sem ritað hefur
verið um dulsálarfræði og skyld efni.
Stutt fréttabréf í Morgni frá félögum um allt land yrðu
vafalítið öðrum félögum hvatning og góður hugmynda-
sjóður í félagsstarfseminni.
VIII. Nýr biskup yfir Islandi
Islenska þjóðfélagið er lítið og fábrotið miðað við stóru
löndin þar, sem ægir saman fólki úr öllum heimshornum.
Allmörg ár átti ég og fjölskylda mín heima í Montreal í
Kanada. Þar hóf dóttir mín skólagöngu sína í fjölmennum
skóla barna sem flest töluðu tvö tungumál, ensku eða
frönsku í skólanum og svo móðurmál foreldranna, þegar
heim var komið. Fjöldi þessara tungumála heima fyrir
var víst tuttugu og sex. öll helstu trúarbrögð heims áttu
sína stuttfættu fulltrúa í skólanum.
f slíkum þjóðfélögum eru margir andlegir leiðtogar,
hver fyrir sínum flokki meðan hefðir haldast — hvað sem
síðar verður. Hér á landi er nánast ein trú, ein kirkjudeild,
ein kirkja, sem allir þekkja, svip hennar í dag og sögu
frá upphafi. fslendingar aðhyllast kirkju sína ámóta mikið
og þjóðfélagið, en hvorutveggja áskilja þeir sér rétt til að
finna að — í von um betri kirkju og betra þjóðfélag. Gagn-