Morgunn


Morgunn - 01.12.1984, Side 73

Morgunn - 01.12.1984, Side 73
NÝJUSTU KENNINGAR . . . 147 myndir, sem séu nálægt því að vera réttar; og til þess hef- ur verið notaður ritari með dágóðri menntun, sem fús er á að veita sína þjónustu með trúmennsku og gædd er áberandi heiðarleik“. Vér snúum oss þá að sumu því, sem sagt er í þessum skrifum. Auðvitað get ég ekki tekið nema sumt af því. Ég hef valið að skýra nokkuð frá því, sem oss er sagt um þrjú fyrstu stigin eftir andlátið. Ég geri ráð fyrir, að það sé auðskildara almenningi en margt annað í bókinni. Og eftir því, sem ég lít á, er í því fróðleikur, sem skiptir miklu máli fyrir alla menn. Og mér finnst það réttast að byrja á þeim varnagla, sem Myers slær sjálfur í upphafi bók- arinnar, að hann sé takmarkaður við það, sem hann viti sjálfur, takmarkaður við sína eigin reynslu. Hann geti aðeins reynt að rita um sannleikann eins og hann skynji hann. ,,Ég vona“, segir hann við miðilinn, „að við séum að vinna að sama takmarkinu. Við finnum ef til vill bæði, að ef við getum bætt nokkru við mannlega þekkigu á hinu andlega eðli mannsins, þá sé fyrirhöfn okkar og erfiði ekki einskis virði. Það er líklegast ekki á okkar valdi að koma með æsandi atburði, en að minnsta kosti getum við, þótt í smáum stíl sé, hjálpað til þess að auka bá þekkingu, að til séu víðáttumiklir sjóndeildarhringir, sem skynjun mannanna nær alls ekki til, og þenji sig takmarkalaust út í óendanleikann“. „Margs konar og mismunandi", segir hann ennfremur, »eru þau skilyrði, sem sálin er háð, þegar hún lifnar í öðrum heimi. Ég nota af ásettu ráði orðið lifnar í sam- bandi við sálina. Því að okkur virðist sálin eins og dauð, meðan hún lifir í sínum jarðneska líkama, eins og öllum þorra vantrúarmanna mundi virðast við vera. Það er áreiðanlega satt, að mörgum okkar liggur við að efast um, að nokkur sál sé i líkömum sumra karla og kvenna, sem gædd eru lítilfjörlegu, dýrslegu eðli, og lifa, í jarð- oeskum skilningi, á jörðunni um þessar mundir“. Næst ætla ég þá að minnast á það, sem oss er sagt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.