Morgunn - 01.12.1985, Blaðsíða 96
sagt reynslu sína). En aftur á móti er afar fágætt að
þeir, sem farið hafa úr líkamanum við lyfjasvæfingu, segi
þá sögu af sér. Hinsvegar hafa báðir aðilar sagt frá því,
að það að fara úr líkamanum líkist því að fara í gegnum
göng, og báðir sagt, að þá hafi þeir hvorki kennt ótta né
þjáninga. Margir, sem farið hafa úr líkamanum með eðli-
legum hætti, án lyfjanotkunar eða svæfingar, hafa stað-
hæft, að látnir vinir hafi komið til fundar við þá, en slíkt
hefir enginn staðhæft hinna, ekki einn. Athyglisverðasta
samhljóðanin milli þeirra, sem um stund hafa farið úr lík-
amanum, og hinna sem farið hafa úr honum að fullu og
öllu, dáið, er sú, að þeir, sem með eðlilegum hætti fóru
úr líkamanum, fundu, að vitund þeirra víkkaði og bjó yfir
eiginleikum, sem þeir vissu ekki, að þeir væru gæddir áður,
en að hinir, sem einhverja vitund höfðu meðan á lyfja-
svæfingunni stóð, fundu að vitund þeirra var orðin þrengri,
ófullkomnari. Enn er það athyglisvert mjög, að þeir, sem
eðlilegum sálförum fóru, lýstu umhverfi sínu mjög líku
„Paradísar“-ástandi framliðinna, en hinir, sem fóru úr
líkamanum við lyfjasvæfingu, dvöldust í einskonar „Had-
es“, eða draumaheimi.
Og að lokum: Þeir, sem farið hcifa eðlilega úr líkam-
anum, hafa sagt frá samskonar reynslu og þeir, sem hafa
„dáið“, t. d. hafa báðir lifað „dóminn eftir dauðann", lifað
upp í annað sinn eftir andlátið liðna jarðlífsævi sína. Aftur
á móti minnast hinir, sem hafa farið óeðlilega úr líkaman-
um, ekki einu orði á þá reynslu, alveg eins og er um þá,
sem óeðlilegum dauða deyja á vígvöllunum.
Sálfararnir (bæði þeir sem eðlilegum og óeðlilegum sál-
förum fara) segja frá merkilega líkri reynslu og fram-
liðnir menn (bæði þeir sem deyja eðlilegum og óeðlilegum
dauða). Sumir sálarrannsóknamenn vilja ekkert leggja upp
úr því, sem kemur í gegn um miðlana. Þeir hyggja, að allt
sé það hugarfóstur miðlanna, komið úr hugmyndaheimi
þeirra sjálfra. En það mál hljótum vér að skoða í öðru
ljósi, þegar upp úr kafinu kemur hin merkilega samhljóðan
94
MORGUNN