Sjómaðurinn - 01.03.1939, Blaðsíða 30

Sjómaðurinn - 01.03.1939, Blaðsíða 30
22 SJÓMAÐURINN (5álf öld síðan fyrsti stóri kútterinn kom til Reykjavíkur. T ÁR er liálf öld Jiðin, síðan fyrsli stóri fiskikútterinn, sem liingað var keyptur, Itom lil Reykjavíkur. Það var lcútter Margrét, sem Geir Zoéga keypti árið 1889 frá Danmörku. Guð- mundur Kristjánsson skipstjóri sótti skipið til Danmerkur, á- samt 4 íslenskum hiásetum, en stýrimaðurinn var danskur. Ivútler Margrét var gott og vandað skip á þeirra tíma vísu, um 80 smálestir að stærð, og vakti að vonum mikla atliygli hér, þegar það kom, svo stórl og tígulegt. Það kom liingað i marsmánuði, lilaðið vörum til Zoéga. Undir eins og það hafði verið losað við vörurnar, var farið að búa það á fiskveiðar, og réðusl á það 30 hásetar. Þótti öllum mikið til koma, að ráð- ast á svo stórt og vandað skip. Markús Bjarnason, skólastj. tók við skipstjórn á skipinu, og var síðan lialdið til íiskveiða, og þær stundaðar fram í ágúst og fiskaðist mjög vel. Þegar liætt var veiðum, var skipið útbúið til Spánarfarar og þótti það i mikið ráðist, þar sem þetta var í fyrsta skifti sem islenskt skip var búið til slíkrar farar, eða svo telja fróðir menn, og það segir Ellerl Schram í grein um þetta í Ægi 1933. Guð- nnmdur Kristjánsson tók nú aftur við skipinu. Farmurinn, sem skipið álti að fara með hina löngu leið til Spánar, var 630 skippund af þorski nr. 1. Hásetar áltu að vera 4, auk mat- sveins, en stýrimaður var sá sami. Marga unga sjómenn fýsti lil þessarar farar, en margir gátu ekki orðið útvaldir. Til fararinnar völdust, auk skipstjóra og stýrimanns, Ellert Schram, Þor- valdur Jónsson, seinna skipstjóri, Þórður Sig- urðsson, seinna stýrimaður, og ísak Sigurðsson, seinna stýrimaður. Lúðvíg Jakobsson, nú bók- bindari, var ráðinn sem matsveinn. Lagt var af stað héðan með farminn í sept- embermánuði, en byr var erfiður, og tók það 5 sólarhringa, að komast fyrir Reykjanes, því að suðaustan stormur var á til að byrja með, en síðan gerði norðan storm, og hélst liann Kútter Margrét (eftir málverki). þar lil skijiið kom undir Orkneyjar. Þá gerði alt í einu, um nótt, mikinn storm, og var tekið það ráð, að láta reka. En um morguninn, þeg- ar birti, kom í ljós, að skipið var næstum þvi komið upp í mikla kletta, sem brimið svall við og munaði minstu, að ferðinni lyki þar. En þetta var eyjan Fair Isie, og cr milli Hjaltlands og Orkneyja. Þá var enginn viti á eynni. Þeg- ar skijiið liafði verið hálfan mánuð á leiðinni að lieiman, kom ]iað (il Granton á Skotlandi. Þar fékk skipstjóri fyrirskipun um, hvert lialda skyldi til Spánar, og var skipunin á þá leið, að fara skyldi til Bilbao. Hásetum mun bafa þótt það heldur miður, þvi að þá hafði dreymt um að koma til Barcelona. I Granton dvaldist skip- inu i 4 daga, en siðan var sigll um Norður- sjóinn, og lenti i miklum fiskiskipaflota, er þar stundaði veiðar. Er skipið kom í Ermarsund, gerði blæjalogn, og svarta þoku, og var mikill hávaði á þeim slóðum, öskur og lúðurhljóm- ur, því að þarna var urmull af skipum. Til Bilbao var komið um miðjan október, og var dvalið ]iar í 10 daga. Þaðan var farið lil Le Havrc á Frakklandi; var legið þar í 14 daga og tekið klíð og olíukökur til Danmerkur.

x

Sjómaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.