Útvarpstíðindi - 12.12.1941, Síða 19
Gísli Guftmundsson
Elisabet Einarsdóttir
GuÓrún Agústsdóttir
ÓRINN
'°ngvaglöð og hvert mannsbarn í landinu
að syngja. •
að ég segi, að Arni frá Múla sé bezti
söngmaðurinn í útvarpsráði og bezti
söngmaðurinn á Alþingi. Mér gengur
einna verst að fá Jón Eyþórsson og
Helga Hjörvar til þess að syngja með.
Þeir syngja ,,inn á við“ en ekki ,,út á
við“. Annars vil ég geta þess, að Helgi
Hjörvar er músikstjóri kvöldvökunnar
og fer það vel úr hendi.
— Hvaða lög eru það, sem fólkið
Óskar helzt að syngja ?
— Sumir biðja um jazzlög, en þeim
verðum við að svara kurteislega, að við
teljum það ekki hlutverk kórsins, að
syngja jazzlög. Aðrir biðja um sálma-
lög og þeim munum við gera úrlausn.
En flestir óska eftir þjóðlegum söngv-
um og fjörugum lögum. En sá er gall-
inn á, að þjóðlögin okkar eru flest
þunglyndisleg. Við höfum ekki átt al-
þjóðlegt hljóðfæri eins og Norðmenn.
Þeir áttu Harðangursfiðluna, og með
henni hafa þeir skapað létt og leikandi
lög. Noregur er eitthvert mesta þjóð-
lagaland heimsins.
íslendingar áttu langspilið, en erf-
itt var að leika hratt á það, — leikurinn
var fremur hægur og rólegur. Tvísöng-
urinn okkar var ekki heldur þess eðlis,
að hann skapaði æskilegan léttleika.
En með , .léttari músik“ á ég alls ekki
við léttmeti í listinni, t. d. slagarana
svonefndu. Nei, ég á við leikandi og
fjörgandi og gleðivekjandi músik, en
* hún er sjaldgæíust, því að alvaran og
þunglyndið hafa lengst af setið í önd-
vegi í sálum tónskáldanna. Nú eru að
rísa upp mörg ný tónskáld á meðal vor.
• Það er þeirra verk, að taka upp léttara
hjal, — og fólkið á heimtingu á að fá
glaða söngva. Það er heilsusamlegt að
"syngja, og nú er þörf á að syngja glatt
og snjallt, svo að fjöllin endurómi hið
bezta í fari okkar.
Gu&mundur Símonarson
Nlna Sveinsdóttir
Hermann GuSmundtaon