Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Blaðsíða 6

Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Blaðsíða 6
Tímarit Tónlistarfélagsins fyrir undragáfu sína að læra kontrapunkt með ástundun. Þeir þroskuðu tækni sína unz hún varð þeim nærri óafvit- andi. Þeir fengu það vald yfir örðugu formi sónötu og fúgu, að þeir gátu leikið sér að því. í stuttu máli, þó kunn- áttan ein sé ónóg til að skapa mikilvægt verk, er eins óhugsandi að nokkurt ágætisverk hafi orðið til án henn- ar. Vér munum næstum ætíð verða þess áskynja, að ef andagiftin dofnar eða dvín um stundarsakir er því sam- fara brestur á forminu og máttlaus tjáning hennar. Fyrir oss, sem höfum þau sérréttindi að hlýða á og meta, er þetta þýðingarmikið atriði. Að líkindum höfum vér'öll komizt í kynni við verk einhvers viðurkends tón- skálds, sem við fyrstu heyrn virtist vera snilldarverk, en sem hreinskilnislega sagt, vakti í oss fremur undrun en aðdáun. Það fór alveg fram hjá skilningi vorum. Ástæðan til þess var sú, að vér skildum ekki málið. Vér gátum hvorki skýrt fyrir sjálfum oss byggingu verksins né greitt úr tóna- línum þess og var því innsta eðli þess oss hulin ráðgáta. Ef vér aftur á móti kynnum oss listfræðina, lærum vér ekki einungis, oss til mikillar ánægju, að skynja forrn, sam- hengi og hendingar, sem annars hefðu verið oss huldar, heldur verður oss einnig ljós hugsun tónskáldsins, tilfinn- ingar og andríki, sem oss áður í fávizku vorri virtist þoku- kennd og ruglingsleg. í þessu sambandi ber að minnast þess, að allar göf- ugar tónsmíðar — þegar vér einu sinni byrjum að skilja þær — eru ótæmandi uppspretta unaðar. Eins og flestir tónlistarunnendur kann ég sum verk Beethovens utan að í huganum. í hvert skipti, sem ég heyri þau, uppgötva ég í þeim nýja fegurð og nýt nýrrar ánægju. Annað orðið í skýringunni að ofan, sem þarf nánari útlistunar við er orðið tónar, en það er „mál“ tónlistar- innar. Og hér eru oss skorður settar. Eru öll hljóð leyfi- leg, eða eingöngu þau, sem hljómakerfin ná yfir? Þessari spurningu er ekki eins auðsvarað eins og virðast kann við fyrstu sýn. Ef vér skoðum það sem sjálfsagðan hlut að hljóð þau, sem tónlistin notar, eigi að vera þægileg fyrir eyrað — og það er mín skoðun — þá er eftir að taka 6

x

Tímarit Tónlistarfélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Tónlistarfélagsins
https://timarit.is/publication/723

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.