Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Blaðsíða 11

Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Blaðsíða 11
Tímarit Tónlistarfélagsins þessu leyti ólíkur Debussy, sem mýkir allar linur, gefur aðeins bendingar, skapar „atmosphére“ og lætur allt birt- ast í töfrum leyndardómsfullra ljós- og litbrigða. Ein- hver hefir sagt um verk Debussy’s að þau séu „tónverk fyrir taugarnar“. Mætti segja um Ravel, að hann snúi sér fyrst og fremst til skilnings áheyrandans. Ravel fæddist suður undir Pýreneafjöllum, í Ciboure nálægt St. Jean de Luz, 7. marz árið 1875. Hann var kom- inn af Böskum í móöurætt. Tólf ára að aldri fluttist hann til Parísar og stundaöi nám við Conservatoire Nationale, og var Gabriel Fauré aðalkennari hans í tónsmíði. Fyrstu tónverk sín, sem kunn eru, samdi Ravel um tvítugt og voru þau flutt opinberlega í fyrsta sinn árið 1898. Þóttu þau nýstárleg og voru vitt af sumum íhaldssömum gagn- rýnendum. Ravel virðist þegar í upphafi tónlistarferils síns hafa „fundið sjálfan sig“ þótt einhverra áhrifa gæti framan af, frá kennara hans Fauré, Debussy og Chabrier. Hér verða aöeins talin upp nokkur helztu verk hans. Fyrir píanó: Jeux d’eau (1901), Miroirs (1905), Sonatine (1903—1905), Gaspard de la nuit (1908) og Tombeau de Couperin (1914—17). Tvö hin síðastnefndu má telja til beztu verka hans yfirleitt. Um hljómsveitarverk hans er að segja, að þau eru flest umritun á píanóverkum hans, en hafa þó alveg nýjan svip. Ennfremur má telja: mörg söng- lög, tvo söngleiki, ballettinn „Daphnis et Chlöe“ og loks ágæt saltónverk: strokkvartettinn (1902—03), tríó fyrir píanó, celló, og fiðlu (1915) og dúó fyrir celló og fiðlu (1920— 1922). Eru verk þessi ásamt kvartett Debussy’s eitthvað það ágætasta, sem frönsk saltónlist hefir eignast. Ravel er þegar kominn í tölu „klassiskra“ tónskálda og mun áhrifa hans gæta lengi í franskri tónlist. Á. K. 11

x

Tímarit Tónlistarfélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Tónlistarfélagsins
https://timarit.is/publication/723

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.