Jazz - 01.09.1947, Blaðsíða 5

Jazz - 01.09.1947, Blaðsíða 5
Rex Stewakt fæddist árið 1907 í Philadel- phiu og hefur leikið á Cornet og Trompet síðan hann var fimmtán ára. Stewart lék með Daniel Doy’s Melody Mixers er hann var fimmtán ára en hætti þar fljótt og lék lengi hingað og þangað þar til Louis „uppgötvaði" hann árið 1925 er hann var að leita að manni í sinn stað, en hann var þá að hætta hjá Henderson. Það tók Louis níu mánuði að koma Rex í skilning um að hann væri hæfur til að taka sæti sitt í hljómsveitinni, og loks lét Rex und- an og tók tilhoðinu. Rex vann hjá Henderson nær óslitið til ársins 1934 er hann kom til Ellingtons, nema hvað hann var um tima hjá McKinley Cotton Pickers. Hjá Ellington varð Rex þar til 1945, er hann stofnaði eigin hljómsveit. Hann varð brátt ein aðalauglýsing Ellingtons og Paul Whit- man, sem er kallaður „King of Jazz“ sagði Rex Stewarf- Litli trompetistinn, er varð erftirmað ur Louis Armstrong. í tímanum „Hall Of Fame“ í bandaríska út- varpinu: „Rex Stewart er mesti Jazzistinn síðan Bix Beiderbecke leið“. Rex hefur leikið inn á óhemju margar plötur bæði með eigin grammófónhljómsveit eða undir stjórn annarra og Charles Edward segir í „The Jazz Record Book“, „Rex Stew- art er aldrei hversdagslegur, hann kemur ávalt á óvart. I sömu bók segir William Russel um Harry James: „Tækni James má líkja við tækni Stewart, en Stewart reynir aldréi að „brilliera" á tækninni einni. Stewart bókstaflega fæddist með Cornettið á munninum og hans mesta ánægja er að spila, stíll hans hefur breyzt mjög, áður en hann kom til Ellingtons var stíll hans mjög einfaldur og mjúkur en nú er hann orðinn hraður, í lotum og mjög sveigjanlegur. Rex Stewart hefur leikið hérumbil með öllum beztu Jazzistum vorra tíma og geta menn gert sér nokkra hugmynd um það, með því að kynna sér plötulista þann, er fylgir á eftir. Koma Stewarts er mikill tónlistarviðburð- ur og mun verða í fyrsta skipti, er góð Jazz- hljómsveit kemur hingað og verður vonandi til þess að skilningur á Jazz aukist meðal ungu kynslóðarinnar. JAZZ 5 L

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.