Organistablaðið - 01.04.1991, Síða 11
möguleika aö fá erlenda orgelsmiöi til aö auglýsa í blaöinu og
góöa reynslu af því frá fyrri árum.
Fundurinn lýsti ánægju sinni meö forystugrein í nýútkomnu tbl.
Organistablaðsins.
Smári Ólason lagði til aö reikningshald félagsins yröi tölvuunnið,
sem myndi létta störf félagskjörinna endurskoöenda.
Jakob Hallgrímsson ræddi möguleika þess aö reka F.Í.O. sem
stéttarfélag, hann taldi aö vegna smæöar félagsins væri ekki
unnt aö halda því gangandi.
Reikningarmr samþykktir einróma.
4) Stjórnarkjör.
Kjör formanns: Tillaga kom fram um Kjartan Sigurjónsson og var
hann kjörinn meö öllum greiddum atkvæöum.
Meðstjórnandi: Réttkjörinn meöstjórnandi er Helgi Bragason.
Varamaöur: Réttkjörinn varamaður í stjórn er Gróa Hreinsdóttir.
Sjálfkjörnir eru Kristín Jóhannesdóttir, gjaldkeri, Höröur Ás-
kelsson, ritari, Björn Steinar Sólbergsson, meöstjórnandi og
Marteinn H. Friöriksson, varamaöur.
5) Önnur mál.
Nýkjörinn formaður, Kjartan Sigurjónsson, þakkaöi stuöninginn
og hét því aö reyna af mætti aö halda uppi merki félagsins.
Smári Ólason ræddi stéttarfélagsmálin, hann taldi þaö styrk
organista sem stéttar aö halda félaginu gangandi þrátt fyrir smæö
þess, í staö þess aö vera angi af stóru stéttarfélagi.
Formaöur las upp bréf frá heiðursfélaga, Siguröi ísólfssyni, þar
sem hann þakkar heiðurinn, sem honum hefur hlotnast af hálfu
félagsins.
Jón Ólafur Sigurðsson lagöi til aö sækja skyldi um styrk til kirkju-
ráös vegna rekstrar F.Í.O.
Hann kom á framfæri leiðréttingu vegna raddskipunar orgels
Akraneskirkju o.fl. í nýjasta hefti Organistablaðsins.
Jakob Hallgrímsson ræddi rekstur stéttarfélags F.Í.O. og nauð-
syn þess aö hafa starfsmann í fastri stööu, sem svarar til um
launamál, ráöningar o.fl.
Höröur Áskelsson hóf umræöur um framtíð blaösins og geröi
ORGANISTABLAÐIÐ 11