Morgunblaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2009 Farðu inn á www.oddi.is og búðu til persónulega gjöf. Vegleg innbundin myndabók með þínum myndum. Hannaðuþína eiginmyndabók áoddi.is VERÐ FRÁ 6.900kR. EINTAkIÐ FLEIRI hundruð íbúa í Feneyjum á Ítalíu tóku um helgina þátt í tákn- rænni athöfn, þar sem sett var á svið útför síðasta íbúans, til þess að varpa ljósi á fólksfækkun í borginni og þann vanda sem íbúarnir búa við. Færri en 60 þúsund Íbúum Feneyja hefur fækkað stöðugt og nú eru þeir færri en 60 þúsund, 59.992 samkvæmt upplýs- ingaskilti í borginni. Skipuleggjend- ur athafnarinnar um helgina vildu vekja athygli á þeim vandamálum sem blöstu við íbúunum og gerðu það með því að sigla gondólum um síkin, einum með tómri líkkistu skreyttri krönsum undir ómandi tónlist borg- arinnar. Um 20 milljónir ferðamanna heim- sækja Feneyjar árlega. Fram kom hjá skipuleggjendum athafnarinnar að allt snerist um ferðamenn en ekk- ert væri gert fyrir íbúana. Einn benti á að fasteignaverð í Feneyjum væri tvöfalt á við það sem þekktist annars staðar í nágrenninu og það væri of hátt fyrir fólk með meðal- tekjur. Borgaryfirvöld yrðu að skipuleggja ný svæði. Feneyjar verði ekki bara fyrir ferðamenn Íbúarnir vilja að borgaryfirvöld hugi að uppbyggingu Reuters Síðasti íbúinn Siglt var með blóm- um skreytta tómu kistuna um síkin. BRESKU ræðararnir Chris Martin og Mick Dawson komu til San Fransisco á vesturströnd Banda- ríkjanna eftir að hafa róið bát sín- um frá Choshi í Japan. Þeir lögðu af stað yfir Kyrrahafið 8. maí síð- astliðinn og voru 189 daga á leið- inni. Áhöfn á þýsku skipi bjargaði Dawson, þegar hann reyndi að róa sömu leið sumarið 2004. Bátnum hvolfdi þegar hann var rúmlega hálfnaður. Voru 189 daga á árabáti yfir Kyrrahafið Í mark Ræðararnir koma til San Francisco. GEIMFERJAN Atlantis fer í dag frá Canaveral- höfða á Flórída í Bandaríkjunum til alþjóðlegu geimstöðv- arinnar. Sex geimfarar verða um borð og fara þeir með um 15.000 kg af varahlutum, sem eiga að endast í allt að áratug. Geimskotið á að vera klukkan 14:28 að staðartíma og tekur ferðin 11 daga. Geimfarinn Nicole Stott hefur verið í alþjóðlegu geimstöð- inni síðan í lok ágúst og snýr til baka með ferjunni. Atlantis með vara- hluti út í geiminn Atlantis Geimferj- an fer á loft í dag. MEIRA en 45.000 manns og þar á meðal liðsmenn þýska landsliðs- ins í knattspyrnu sóttu minning- arathöfn um Robert Enke, þýska landsliðs- markvörðinn hjá Hannover 96, sem þjáðist af þunglyndi og fyrirfór sér sl. þriðju- dag. Athöfnin fór fram á leikvangi Hannover í gær og fylgdust margir með henni á stórum skjám sem sett- ir voru upp fyrir utan völlinn. Fimm þýskar sjónvarpsstöðvar sýndu beint frá athöfninni. Tugir þúsunda á minningarathöfn Fjölmenni Fólk kom víða að. „VIÐ höfum ekki áhuga á því að vera í Afghanistan,“ sagði Hilary Clinton, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina ABC í gær. Hún sagði það kristaltært að tilgang- urinn með dvölinni í landinu væri fyrst og fremst að sigra Al-Qaeda en ekki stæði til að Bandaríkja- menn yrðu þar til eilífðarnóns. Hilary Clinton sagði að Afganar þyrftu aðstoð til að verjast talib- önum en helsta skylda bandarískra ráðamanna sneri að bandarísku þjóðinni. Hvernig verjast ætti árás- um í framtíðinni. Hún þrýsti á Ham- id Karzai, forseta Afghanistan, um að berjast gegn spillingu og sagði að hann gæti gert betur. Afganist- an mætti ekki aftur verða griða- staður fyrir hryðjuverkamenn. Að- stoð Bandaríkjanna væri háð því að stofnaður yrði sérstakur dómstóll til að fjalla um glæpi í landinu og sérstök nefnd til þess að berjast gegn spillingu. steinthor@mbl.is Reuters Nýtt fangelsi Reist hefur verið nýtt fangelsi í bandarísku herstöðinni í Bag- ram, norður af Kabúl. Það rúmar 1.100 fanga en nú eru þar um 700 fangar. Berjast gegn spillingu Tilgangurinn fyrst og fremst að sigra Al-Qaeda EKKI er nema rúmlega mánuður til jóla og margir farnir að setja sig í stellingar fyrir hátíð- ina. Þótt íbúar séu almennt ekki byrjaðir að skreyta heimili sín með jólaljósum og skrauti eru eigendur fyrirtækja og stjórnendur stofnana og bæja farnir að huga að því að lýsa upp skamm- degið. Jólamarkaðurinn á ráðhústorginu í Vín í Austurríki er árviss viðburður og merki þess að senn koma jólin. JÓLAMARKAÐURINN BYRJAÐUR Í VÍNARBORG Reuters BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, hvatti í gær yf- irvöld í Búrma til þess að láta Aung San Suu Kyi og aðra pólitíska fanga lausa úr haldi. Áskorun Obama kom á leiðtogafundi 10 Suðaustur- Asíuríkja í Singapúr og var Thein Sein, forsætisráðherra Búrma, á fundinum. Suu Kyi hefur verið í stofufangelsi í 14 af síðustu 20 árum. Flokkur hennar sigraði í þingkosn- ingunum 1990, en herforingjastjórn- in neitaði að viðurkenna sigurinn. Suu Kyi verði leyst úr haldi Obama og Lee Hsien Loong.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.